Færsluflokkur: Bloggar

Æji mátti ekki sleppa þessu í dag maður spyr sig ?

Líklega ekki væntanlega er þessi vettvangur vel til þess fallinn að mótmæla svo tekið væri eftir en eins mikið og mér finnst þurfa að mótmæla þá hefði ég viljað sleppa við þetta í dag en ég skil vel þá sem eru að mótmæla og segi því bara gleðilegt nýtt ár við mótmælendum sem aðra. Kv. Tótinn
mbl.is Hafa ruðst inn á Hótel Borg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hef alltaf sagt þetta bjór í hófi er allra meina bót !

Frábært að fá þetta staðfest að bjórinn dregur úr hættu á krabbameini. Ég var að vísu aðeins efins með það að þurfa að láta steikina liggja í leginum í nokkra tíma en svo fór ég að hugsa. Ég innbyrði bjórinn með steikingunni og þegar steikin er komin í magann þá liggur hún þar í bjórleginum í einhverja tíma væntanlega ?? meðan meltingin fer fram. Ég ætla alla vegna að halda mig við þá skýringu ekki spurning þannig að 2009 verður grillárið mikla ef maður kemur höndum yfir eitthvað kjet að grilla og á fyrir bjórnum en maður spyr sig. Tótinn


mbl.is Vín og bjór minnka hættuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einhvers staðar þyrftu menn að segja af sér fyrir minni sakir ?

Ég held að í hinum siðmenntaða heimi hefði svona klúður valdið afsögn en ekki í Bananalýðveldinu Íslandi o nei en ætli hann segi af sér út af þessum smávægilega vinargreiða maður spyr sig. Tótinn
mbl.is Annmarkar á skipun dómara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljótt er ef satt verður - ég held að þetta sé varleg áætlun !

Ég get bara ekki séð eins og mál eru að þróast annað en að svona verði árið 2009 í hnotskurn því miður. Ég hef heyrt í bankamönnum í nýju bönkunum og þar virðast skilaboðin skýr(ef rétt er haft eftir þeim), ekkert verður lánað til atvinnurekstar og þá held ég að mörgum blómlegum fyrirtækjum verði fyrirmunað að halda áfram rekstri. Ég vona að sjálfsögðu að þetta sé ekki sá raunveruleiki sem við eigum eftir að sjá en ég held að svona verði þetta. Það sem þarf að gerast er í raun og veru ekki mjög flókið, það þarf að veita fjármagni í arðvænlegan fyrirtækjarekstur nú sem aldrei fyrr því að ég held að það versta sem hægt er að hugsa sér er að vera án atvinnu með allar þær skuldbindingar sem fylgja "venjulegum" heimilisrekstri í dag en hvort eitthvað verði gert er vandi um að spá en maður spyr sig. Tótinn
mbl.is Allt að 20 þúsund án atvinnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erjur Íslendinga útaf enska boltanum - hvað veldur???

Ég hef oft spurt mig að því uppá síðkastið hvað veldur því að venjulegir Íslendingar að ég held þokkalega heilir á geðsmunum sleppa sér algjörlega þegar kemur að leikjum eða fréttum af "þeirra liðum" í enska boltanum, undirritaður er einn af þessum hamslausu aðdáendum og er hans lið Liverpool.  Viku eftir viku er horft á leik eftir leik, leikskipulagið krufið til mergjar og skammast útí stjórann, stjórnina, leikmennina og jafnvel dómarahelv... Blogsíðurnar verða svo yfirfullar af misánægðum aðdáendum sinna liða sem mæra þá, bölva eða rífa andstæðingana niður í háði, kalla þá öllum illum nöfnum og ganga jafnvel svo langt að kenna þá við samkynhneigð, leikaraskap, níðingsverk eða jafnvel hóta þeim lífláti. Hvað fær okkur til að ganga svona langt útaf einhverjum tjöllum sem hirða milljónir og jafnvel milljónatugi fyrir það eitt að gera það sem þeim finnst skemmtilegt þ.e. að elta einhverja boltatuðru til þess eins að sparka henni eins langt frá sér og þeir geta loksins þegar þeir ná henni maður hreinlega spyr sig? Ég hef reyndar haft í gegnum tíðina afskaplega gaman af því að snúa útúr, afbaka eða "analisera" fréttir af höfuðandstæðingum okkar Poolara þ.e. Manutd. Líklega snýst þetta að hluta til um öfund, United hefur hirt flesta stærstu titla í boltanum síðustu árin og titlaþurrð sigursælasta liðs allra tíma (Liverpool) hefur ekki riðið við einteyming. Líka spilar það mikið inní að ég fæ yfirleitt mestu og hatrömmustu viðbrögðin frá aðdáendum þess annars ágæta klúbbs og ekkert gleður mig eins og ef ég næ að æsa einhvern aðeins og svo langt hefur gengið að mín heittelskaða hefur spurt mig hvort ég vilji ekki aðeins fara að slaka á svo ég verði hreinlega ekki laminn en þetta er græskulaust gaman mér þykir ákaflega vænt um þegar United gengur vel svo lengi sem það er ekki á kostnað okkar Poollara en að hætta að atast í þeim: Ekki séns í helvíti eins og einn góður maður komst svo vel að orði einu sinni en maður spyr sig. Tótinn

Annáll ársins 2008 - svona frá mínum bæjardyrum séð.

Árið 2008 verður væntanlega í fersku minni hjá mér af mörgum ástæðum sem hlaupið verður yfir í fljótheitum hér á eftir: Janúar. hófst með miklum væntingum um góða tíð og gott ár í sölu fasteigna eins og 2007 sannarlega hafði verið en fljótt sáust blikur á lofti um að ekki yrði árið eftirminnilegt á þeim bænum í persónulega lífinu var janúar hreint ágætur utan veikinda föður míns sem höfðu ágerst frekar en hitt. Febrúar: var rólegheitamánuður í sölu og ekki var loku fyrir það skotið að það bæri talsvert á því að árið yrði með rólegheitamóti í þeirri deildinni. Persónulega var febrúar bara fínn. Mars. Byrjaði frábærlega á einstaklega skemmtilegri ferð til Tenerife með minni heittelskuðu eiginkonu og Ragnari og Björk vinafólki okkar sem bæði fögnuðu 50 ára afmæli sínu í ferðinni auk þess sem ég átti afmæli á milli þeirra þannig að þetta varð ein samfelld afmælisveisla og veðrið var frábært en þarna strax byrjaði krónan að falla gagnvart öðrum gjaldmiðlum og ég man eftir því að það var hrópað yfir hópinn:Evran er kominn yfir 100 kallinn. Apríl: byrjaði vel fyrir mig, ég losnaði við spangirnar sem ég hafði verið með síðustu tvö árin, helvítis pjatt og alveg rosalega mikið svona 2007 dæmi sem kostaði 1,5 millj. pening sem ég væri alveg til í að eiga í dag en þetta var víst nauðsynlegt. Konan mín fór í uppskurð og var óvinnufær og ekki brúkleg í húsmóðurhlutverkinu þann mánuðinn þannig að ég fór á kostum sem húsmóðirin ég sjálfur eins og ég bloggaði hreint endalaust um og útlistaði ég þar eigið ágæti. MAÍ: versti mánuður sem ég hef upplifað, faðir minn Friðgeir Þorkelsson lést þann 6. maí eftir langvarandi veikindi aðeins rétt tæpra 67 ára og var mánuðirinn því algjörlega helgaður því sem fylgir andláti hans og eftirköstum þess. Ekki fór mikið fyrir vinnu þann mánuðinn enda var markaðurinn nær því að vera stopp og nú fór að fækka í bransanum sem kannski mátti alveg gerast. Júní og Júlí voru ágætir mánuðir, fóru mikið í að reyna að komast yfir andlát pabba og læra á þá hluti sem hann hafði séð um í bústaðnum okkar í borgarfirði auk samveru með ættingjum og vinum sem voru misduglegir þó að kíkja á okkur hjónin í sveitinni. Eitthvað var fellihýsið brúkað en ljóst er að ekki eru það gáfulegustu kaup okkar hjóna enda svolítið svona 2007. Í ágúst var farið að gera klárt fyrir komandi haust og vetur og ekki grunaði mann að haustið og byrjun vetrar yrðu með þeim hætti sem raun varð. Kreppan skall á okkur eins og flesta landsmenn í september og október og vinnufélögum mínum á Valhöll fór fækkandi, Viggó farinn, Ellert vinur minn og samstarfsfélagi til margra ára fór með sinni ektakonu til kanarí í frí fram í febr. eða mars. Salan var hreint út sagt léleg og enn syrti í álinn, fasteignasölum fór fækkandi bæði fyrirtækjum og starsfmönnum. Persónulega voru þessir mánuðir þokkalegir hjá mér að vísu lítið að gera í vinnunni en heima fyrir gekk allt með ágætum hjá mér og mínum, sonurinn á fullu í vinnunni, dóttirin á fullu í skólanum, kötturinn í fínum málum og konan í mjög góðum málum seldi vel í sinni vinnu og allt í góðu standi. Nóvember var svipaður og mánuðirnir á undan nema helv. kreppufréttir daginn út og daginn inn sem ekki hjálpuðu til við fasteignasölu. Desember var ágætur framanaf en ekki var mikið um kaup og sölur þann mánuðinn, kreppan hélt sínu striki og ég er ekki frá því að hún hafi haft talsverð áhrif á jólagjafirnar og jólastandið fyrir þessi jól. Náði mér í heiftarlega flensu rétt fyrir jólin og í fyrsta skipti í 24 ára búskapartíð okkar hjóna tók ég lítinn þátt í jólaundirbúningnum. Jólin voru þó yndisleg þrátt fyrir allt, talsvert borðað, mikið lesið og púslað, þó var rosalega skrýtið að hafa Pabba ekki með okkur og var mér mikið hugsað til hans þessi jólin en svona getur lífið verið. Ég sá á eftir einum samstarfsfélaganum enn í des. Þóra er hætt hjá okkur og að sjálfsögðu er mikil eftirsjá í henni eins og hinum en svona er helv. kreppan að fara með okkkur.
Sonur minn þarf að fara fljótlega í uppskurðinn sem búinn er að hanga yfir honum undanfarin ár á augunum og verður væntanlega óvinnufær í einhverja mánuði, honum dauðkvíður fyrir þessu og okkur líka en þetta verður ekki geymt öllu lengur. Að lokum ætla ég að óska öllum gleðilegs nýs árs og ætla ég að vona að árið 2009 verði betra en 2008 var en maður spyr sig. Kv. tótinn



Á að taka mark á þessum manni veit hann hvað hann syngur?

Kallinn hefur verið í einhverju svaka jólastuði þegar hann lýsti þessu yfir ég veit ekki hvað honum gengur til en ég segi það eins og hann að eins og staðan er í dag þá þurfa Arsenal að styrkja sig talsvert til að geta verið með í baráttunni en það er nú einungis hálfnað mótið og ég held að eina sem sé öruggt er að efstu fjögur - fimm liðin falla ekki þetta árið en að öðru leiti getur þetta farið hvernig sem er ég vonast til þess að þetta verði spenna fram í síðustu umferð og megi besta liðið(Liverpool að mínu mati) vinna þetta. Maður spyr sig Tótinn
mbl.is Ferguson afskrifar Arsenal í titilbaráttunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Því miður er þetta allt of algeng sjón !

Ég er enn að sjá fullt af fólki í umferðinni sem ekur um án bílbelta og jafnvel með börnin laus milli sætanna og ég get ekki að því gert að það setur að mér hroll í hvert sinn sem ég sé svona, það tekur held ég svona um það bil 2 sekúndur að setja á sig beltið en þessar 2 sek geta bjargað öllu komi til þess að þú keyrir á eða keyrt er á þig. Margir segja að það taki því ekki að setja á sig beltið þar sem þeir eru rétt að skjótast milli húsa, eða í búðina og aki þeir alltaf varlega. Það þarf oft ekki mikinn hraða til, höggið í ákeyrslu á 30 kílómetra hraða er mjög mikið og getur valdið örkumli eða jafnvel dauða. Ég hvet því alla til að henda á sig beltinu það tekur enga stund og margborgar sig. Kv. Tótinn
mbl.is Fjórir af 11 ekki í bílbeltum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stoltur þrátt fyrir tap ! segir það ekkert.

Yfir hverju er hann stoltur þeir varla komu boltanum yfir miðjuna og áttu hvað 4-6 skot í öllum leiknum á móti 33 eða 4 skotum unitedmanna. Þetta er það leiðinlega við fótboltann þegar lið koma á móti "stóru" liðunum og hreinlega pakka í vörn en ekki var nú spilamennska United neitt til að hrópa húrra yfir en þeir náðu þó sigri. Ég er búinn að segja það og segi það aftur að það verða United og Liverpool sem berjast um þennann titil fram á vor, chelsea er væntanlega ekki búið að syngja sitt síðasta heldur og Arsenal þarf væntanlega ekki nema 2-3 toppleikmenn í janúar til að geta blandað sér í þetta en maður spyr sig. Tótinn
mbl.is Gareth Southgate: Stoltur af mínu liði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bíddu nú við, verður þessi hjá Liverpool ??

Ég játa það að ég hélt að þessi væri brunninn yfir, hann virkaði massagóður oft hjá Chelskí en hef ég lítið séð til hans hjá Pompey en kannski vantar okkur svona mann ég veit það ekki en maður spyr sig.

kv. Tótinn 


mbl.is Glen Johnson á leið til Liverpool?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband