Færsluflokkur: Bloggar

Ég mótmæli allur. !!!

Ég hef tekið meðvitaða ákvörðun á nýju ári um það að gerast mótmælandi. Ég er reyndar kominn í stóran vanda eins og Jón Gnarr í skaupinu um það hverju ég á að mótmæla. Á ég að mótmæla stríðinu milli Ísraela og Palestínumanna, jú það er ágætur málstaður en með hverjum á ég að halda. Á ég að mótmæla ríkisstjórninni ? jú það er líklega líka ágætis hugmynd ef ég sæi einhverja aðra til að taka við keflinu. Á ég að mótmæla Dabba ofurhetju í Seðlabankanum ? jú það mætti alveg henda einum og einum mótmælum á hann kallugluna. Á ég að mótmæla grandvaraleysi FME? jú líklega er hægt að mótmæla þeim köppum eitthvað líka. Niðurstaðan er sú að ég ætla að mótmæla: hverju kemst ég líklega að mjög fljótlega en þangað til segi ég bara eins og góður maður sagði einu sinni: HELVÍTIS FOKKING FOKK. Kv. Tótinn

Liverpool öruggir í næstu umferð !!

Ekki á ég von á því að mínir menn í Liverpool verði í vandræðum með arfaslakt lið everton í næstu umferð bikarsins en maður veit svo sem aldrei þessi fj... bikarkeppni er bara allt önnur keppni en premierliege.  Torress kominn til baka, Gerrard í flottu standi þrátt fyrir smá hnökur utan vallar og ég sé ekki að Everton stoppi okkur í FA.... en maður spyr sig. Ég er að horfa á Southamton - United og ég verð að segja eins og er að þrátt fyrir að Hörður Magnússon sé góður og gegn Poolari þá er nú alveg óþarfi að gagnrýna hvern einasta dóm sem riley dæmir á southamton.  Höddi minn passa sig nú þetta var púra víti og ekkert annað kv. Tótinn
mbl.is Liverpool mætir Everton í bikarnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En heimilin verða þau afeitruð ?

Ég get ekki annað en velt fyrir mér hvort hið sama verði gert fyrir skuldsett heimili þeirra sem einnig eru tæknilega gjaldþrota ?? En maður spyr sig kv. Tótinn
mbl.is Reksturinn afeitraður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikill munur milli lögreglu og mótmælenda á fjölda?

Ég hef aldrei skilið hvernig lögreglan getur áætlað fjölda þátttakenda hvort sem fagnaðir eða mótmæli eru í gangi. Mér er reyndar nokkuð sama hvort fjöldinn var 1500 eða 4 þúsund. Mótmælin fóru vel fram(enþá) og það er fyrir mestu og er það von mín að ofbeldisseggirnir hafi gleymt að mæta en maður spyr sig. Tótinn
mbl.is Mótmælt á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íþróttamaður ársins með sanni !

Þessi drengur er bara snillingur, eins og ég átti von á fékk hann fullt hús stiga annað hefði verið lögreglumál en skemmtilegast var að hlýða á hann í viðtalinu á eftir. Hann á allt gott skilið og verðskuldar þessa viðurkenningu og nú hlýtur ÓRG að hengja á hann eina orðu í viðbót sé hún til? Maður spyr sig. Tótinn
mbl.is Ólafur Stefánsson íþróttamaður ársins 2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Teves ekki inní framtíðarmynd sörsins ?

Ég held að miðað við að Teves hefur ekki verið fastamaður í liðinu í nokkrum undanförnum leikjum að sörinn sé ekki alveg viss um hvort það eigi að kaupa kappann eða sleppa honum ? Maður spyr sig allavegna kannski er verðmiðinn á honum fullhár fyrir budduna hjá ríkasta félagsliði heims. Tótinn
mbl.is Ferdinand og Tevez ekki með United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væri líka til í að fá þessa orðu - eða ekki ?

Ég hef svo sem ekkert út á þetta fólk að setja þekki hvorki haus né sporð á þeim en mikið andsk.. hefur mér oft fundist glingrið hengt á suma fyrir það eitt að mæta samviskusamlega í vinnuna. Ég hef verið mjög duglegur í gegn um árin að mæta í mína vinnu það er spurning hvort að ég eigi rétt á orðunni góðu ? Líklega ekki en maður spyr sig. Kv. Tótinn
mbl.is Ellefu sæmdir heiðursmerkjum fálkaorðunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er skíthræddur um að hann nái aldrei að verða forseti.

Ég hef ekki miklar spádómsgáfur en ég er búinn að hafa tilfinningu fyrir því að bandaríkjamenn verði búnir að gera einhvern óskunda og jafnvel kála honum áður en hann nær að verða settur í embættið en að sjálfsögðu vona ég að svo verði ekki, mér líst ágætlega á að hann verði sanngjarn og friðsamur forseti en maður spyr sig. Tótinn 
mbl.is Styttist í embættistöku Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilegt ár til þín líka ÓRG.

Maður sem stutt hefur "víkingana"okkar tók skyndilega Ubeygju í afstöðunni við útrásinni og þurfti meira að segja að breyta bókinni sinni helling kemur nú fram og talar um endurreisn landsins. ÉG held að uppgjör sé óumflýjanlegt og þá er spurningin hvort ÓRG sé ekki undir smásjánni eins og hinir en hann má eiga það að hann fer fram á launalækkun og gefur þar með gott fordæmi, ég hef alltaf stutt ÓRG og ég held að honum hafi einfaldlega verið mikill vandi á höndum við að semja nýárs ávarp sitt þetta árið hann er forseti þjóðarinnar en hann einn getur engan veginn lægt þær öldur sem virðast skella á landinu um þessar mundir en maður spyr sig. tótinn
mbl.is Þjóðarátak nýrrar sóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til háborinnar skammar!

Ég get ekki að því gert að mér finnst sem mótmælendur hafi orðið stuðningsmönnum sínum til háborinnar skammar með þessu hátterni sínu. Kv. Tótinn
mbl.is Fólk slasað eftir mótmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband