Færsluflokkur: Bloggar

Nú má þetta ekki ? það er annað en hér heima ?????

Nei ég veit og vona að sú rannsókn sem komin er í gang skili einhverju um það hvort hinir ríku hafi stundað stöðug "ólögleg" undanskot frá skatti en auðvitað hafa þeir eins og margir aðrir íslendingar gengið eins langt og lögin leyfa og sjálfsagt út á gráa svæðið í einhverjum tilfellum en nú þarf bara að haska sér í rannsókninni þannig að hægt sé að sakfella eða sýkna þessa aðila hvor niðurstaðan sem fæst en maður spyr sig verður þetta rannsakað af einhverju viti hérna??
mbl.is Skoða hugsanleg skattsvik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hefur semsagt komið í ljós að það hafi ekkert komið í ljós !!!

Þá hafa lögin verið hreint arfavitlaus. Allt var þetta gert til að halda uppi verði hlutabréfanna svo hægt væri að selja hinum venjulega fjárfesti sem var að fjárfesta fyrir "eigið sparifé" ekki með lánum frá bönkunum og loforði um endurgreiðslu ávinningsins áður en viðskiptin fóru fram. Er ég einn um þá skoðun að finnast skítalykt af þessu ?? maður spyr sig.
mbl.is Sigurður segir engin lög hafa verið brotin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta það sem talað var um - vernda heimilin blabla bla

Stöndum vörð um heimilin, mildum gjaldþrotalögin, göngum ekki að skuldurum. Þvílíkt bull sem rennur uppúr ráðamönnum. 370 manns verða færðir í handjárnum fyrir stónsarann á selfossi, Lín innheimtir af fullri hörku. Hvað er í gangi ? Ætli það verði gengið hart fram í að innheimta til baka hjá þeim sem virkilega eru búnir að setja þessa þjóð á annan endann ? Nei þeir fá væntanlega meira klapp á bakið og verða verðlaunaðir aftur fyrir dugnað. Ég er ekki að segja að það eigi ekki að innheimta skuldirnar sem þú hefur komið þér í en halló er ekki allt í lagi þarna úti. Maður spyr sig. kv. Tótinn
mbl.is Fá endurkröfubréf frá LÍN
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snúinn af villu míns vegar.......- United er með besta liðið!

Ég hef tekið ákvörðun, drastíska ákvörðun og hún er sú að ég er hættur að vera Poolari, minn stuðningur við Liverpool hefur verið þeim til trafala og nú er svo komið að það er ekki spurning hvað liðið þitt gerir fyrir þig heldur hvað þú gerir fyrir liðið þitt og þar sem spádómar mínir og framsýni hafa til þessa orðið mínu fyrrverandi liði til vansa þá er ákvörðun mín sú að allavega fram á vorið mun ég verða einlægur stuðningsmaður United besta liðs í heimi en stuðningurinn verður mest í orði og mun ég ausa úr viskubrunni mínum þeim til handa þar til þessari leiktíð líkur eða allavega eins lengi og ég hef nennu til......Er það von mín að minn stuðningur við þá muni leiða til þess að mínir fyrrverandi "Lúserpool" verði meistari í vor. Kv. Tótinn

Alveg með ólíkindum með þessa blessuðu sjóðstjóra þeir týnast bara !!

Ég þekki ekki nokkuð til þessa manns en mikið svakalega hlýtur þetta að vera erfitt starf sem þessir sjóðstjórar inna af hendi. Ég ætla rétt að vona að hann hafi ekki verið látinn hverfa svona að hætti mafíósanna. Við höfum ekki beitt þessu mikið að mér sé kunnugt hér á landi en jésús minn hvað ég held að mörgum langi til að láta einhverja hverfa hér á landi.Ég ætla rétt að vona að svoleiðis verði þetta aldrei hér en maður spyr sig. tótinn
mbl.is Sjóðsstjóri gufar upp og peningarnir líka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væntanlega eins og að setja pening í Íslenskt hagkerfi- tilgangslaust?

Jú endilega að byggja þetta allt upp aftur til þess eins að Ísraelsmenn sprengi þetta allt í tætlur. Þarf ekki að finna varanlega lausn á þessu áður en uppbyggingin hefst fyrir alvöru. Ég er nú svo heimskur að mér finnst þetta svona eins og að pissa í skóinn sinn það á að taka forsvarsmenn Ísraels og Palestínu og flengja þá opinberlega fyrir að geta ekki leyst þetta í eitt skipti fyrir öll en það er eins og með Íslensku kreppuna auðvelt að sitja hérna og rífa kjaft um þetta allt saman án þess að hafa hundsvit á því hvernig þetta er en svoleiðis er þetta bara.
mbl.is Gefur milljarð dala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já og jörðin er flöt og tunglið er úr osti en maður spyr sig ???

Hvort eitt einasta orð úr munni þessa manns er hinn heilagi sannleikur og ekkert nema hinn heilagi sannleikur ??? Ég get ekki að því gert að ég tek orðum þeirra með fullkominni varúð eftir það sem á undan er gengið en ég ætla jafnframt að lýsa því yfir að þar til sekt þeirra er sönnuð þá er betra að fara varlega í palladóma en mikið svakaleg skítalykt er af málinu en maður spyr sig. Kv. Tótinn
mbl.is Ekkert óeðlilegt við viðskiptin við Al-Thani
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Liverpool vann Everton í gærkvöldi 4-0 og er komið á toppinn aftur !

Einn leikur fór fram í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöld og áttust þar við liðin frá bítlaborginni og erkifjendurnir Liverpool og Everton. Staða liðanna í deildinni er býsna ólík og þannig áttu Liverpoolmenn möguleika á því að endurheimta toppsætið í deildinni með sigri en tap hefði þýtt að Manchester United hefði haldið toppsætinu með leik til góða þar að auki. Everton hefði aftur á móti með sigri styrkt stöðu sína í sjötta sætinu. Það er skemmst frá því að segja að leikurinn varð aldrei sú skemmtun sem von var á því Liverpool tók strax öll völd á vellinum studdir áfram af sínum frábæru áhorfendum og eftir 20 mínutna leik var staðan orðin 2-0 og í hálfleik höfðu þeir rauðu bætt við einu marki og voru þar að auki einum fleiri eftir að Tim Howard var vikið af leikvelli rétt fyrir hálfleik fyrir að brjóta á Steven Gerrard sem var kominn einn innfyrir vörnina, víti var dæmt og skoraði Gerrard úr vítinu sitt annað mark í leiknum eftir að Torress hafði komið Liverpool í 1-0 strax á fjórðu mín. leiksins. Eitt mark var síðan skorað í fjörugum seinni hálfleik og var það Lúkas Leiva sem skoraði það með sinni fyrstu snertingu eftir að Gerrard hafði fengið heiðursskiptingu á lokamínutu venjulegs leiktíma. Everton voru reyndar mun meira með boltann í seinni hálfleik án þess að skapa sér nein alvöru færi. ZZZZZZZZZZZZZ.   Ó mig auman ég vaknaði í morgun brosandi út að eyrum því þetta var það sem mig dreymdi í nótt og nú er ég sannfærður um að leikurinn í kvöld verður bara formsatriði og ég er að spá í að tippa á úrslitin. Góða skemmtun........ kv. Tótinn

Við hvern er að sakast ? Þann sem fer eftir reglum eða þann sem bjó til þessar arfavitlausu reglur ?

Ég  get ekki að því gert að mér verður hugsað til þess hvort að þessir aðilar eru að fara eftir þeim reglum sem búnar voru til um svona viðskipti ? Ef svo er þá liggur það fyrir að þeir sem bjuggu til lögin og reglurnar eru þeir seku en ef þessir gæjar/ pæjar hafa verið að brjóta lögin þá á að loka þau inni í allt að sextán ár. Ég skil ekki í því að ekki sé búið að draga einhvern út úr hýði sínu í handjárnum og setja í gæsluvarðhald meðan að verið er að rannsaka málin svo ekki verði rannsóknargögnum spillt. Ég er klár á því að ef ég færi í næsta banka og næði að ræna eins og eitt hundrað þúsund krónum og yrði nappaður þá yrði ég settur í gæsluvarðhald samdægurs og dæmdur en það er búið að stela(að sögn) hundruðum milljarða og enginn er kominn í varðhald. HVAR Í HEIMINUM VÆRI ÞETTA LÁTIÐ VIÐGANGAST: jú líklega í Simbawbe nei líklega væri búið að skjóta einhvern þar en hvar er siðferðið hér heima? Maður spyr sig. Kv. Tótinn
mbl.is Hundruð milljarða millifærðir á reikninga erlendra félaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meistarefnin í United grísuðu á sigur!!

Ég hélt að mínir menn í Bolton væru nú að brjóta united á bak aftur með fínum leik á REEEBOOk en þá þurfti Berbi bulla að setja eitt kolólegt mark, púra hendi á argentínska ofurmennið í aðdragandanum. Eins og venjulega fékk united sigurinn á silfurfati........ NEI ÞETTA ER DJÓK; jafntefli hefðu verið ósanngjörn úrslit og því segi ég united eru verðandi meistarar (ekki séns) heimsmeistarar, evrópumeistarar og vinna framrúðubikarinn. Manutd eru og verða bestirrrrrrrrrrrrrrrrrrrr áfram ....................................liverpooooooollllllllllllllllllllll
mbl.is Manchester United í toppsætið - Lampard bjargaði Chelsea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband