Færsluflokkur: Bloggar

Bjartsýni er mjög góð en raunsæi er betra held ég ??

Ég er einn af þeim sem er alltaf svartsýnn fyrir leiki Liverpool þannig að það er ekki skrítið að ég sé svona með létt hland fyrir hjartanu fyrir leiknum í kvöld. Kúlan mín góða sem spáir aldrei rétt er komin í fýlu og ekkert sá ég þar sem hægt væri að byggja á þannig að ég ætla að leyfa mér að vera svo svartur að halda að þetta verði ca 2-1 fyrir Real Madríd en það góða við að halda með Liverpool er að þeir eru alltaf að koma á óvart með annaðhvort frábærum leik og góðum sigrum eða skítaframmistöðu og Jafnteflum en maður spyr sig hvað gerist í kvöld ? Tótinn
mbl.is Carragher bjartsýnn fyrir leikinn í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrítið ég hélt að þetta einskorðaðist við Liverpool ???

Vinir mínir sem ótrúlegt en satt halda margir með Manutd veðbj..... hafa verið duglegir í gegnumtíðina að minna mig á það að í hvert sinn sem Poolari bregður sér yfir hafið að sparka bolta þá hafi einhverjir misvitrir þjófar haft það fyrir sið að tæma heimili þeirra á undangengnum árum og sagt að svona geri menn ekki í Shittown en nú er hún snorrabúð stekkur, er ekki aumingja Flekksnes kominn í hóp Púlverjanna í nágrannabyggðalaginu þannig að það gerast ævintýri á fleiri stöðum en Liverpool. Kannski eru þeir farnir að sjá að hjá Shitunited eru peningarnir en maður spyr sig.
mbl.is Innbrot á heimili Fletchers og unnustu hans ógnað með hnífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að sjálfsögðu á að afnema þetta strax !

Þetta ósanngjarna gjald hefur orðið þess valdandi að fjöldi löggiltra fasteignasala hafa skilað inn skírteini sínu þar sem ástandið á mörkuðum er ekki til þess fallið að halda úti fjölda löggiltra fasteignasala innan sömu starfsstöðvar þar sem lögin kveða svo á að einungis þurfi einn löggiltan fasteignasala á hverja starfsstöð sem oftar en ekki leppar stofuna hvort eð er. Ég held að það þurfi að fella niður einnig skylduaðild að félagi fasteignasala sem komið var á við síðustu lagasetningu um stétt fasteignasala. Ég sé ekki að nokkur leið sé að skylda þig til að vera félagsmaður í einu félagi frekar en öðru og vil ég (hafi ég áhuga á því að vera í félagi yfir höfuð) velja sjálfur í hvaða félagsskap ég er. Ég get ekki að því gert samt sem áður að ég undrast stórlega þau drög og þær upplýsingar sem fram hafa komið varðandi þá endurkoðun á lögum um fasteignasala sem nú er verið að vinna að þar sem augljóslega er verið að víkka út hverjir það eru sem geta starfað í faginu frekar en þrengja það.
Eins og ég hef margoft rætt þá tel ég það ótækt að einn löggiltur fasteignasali geti haft á sínum snærum allt að 20 -30 ófaglærða sölumenn/ráðgjafa eða hvað þeir kalla sig og borið einn ábyrgð á þeim öllum en það er svo allt önnur ella.
Burt með skylduaðild að Félagi Fasteignasala og þetta ósanngjarna eftirlitsgjald út í hafsauga strax, þetta er ekkert annað en eitt skattabullið til viðbótar en maður spyr sig.
mbl.is Íhuga tímabundið afnám eftirlitsgjalds
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann ætti að vera að pissa í sig af hræðslu !!!

Auðvitað er hann hræddur við besta lið í heimi, evrópu og á bretlandseyjum og það með réttu. Að eigin sögn er lið United skipað einhverjum mestu hetjum sem stigið hafa á Ítalska grund og því ætti leikurinn í kvöld einungis að vera formsatriði fyrir Rauðnef Rótara og liðsmenn hans. Ég spái því að leikurinn fari að minnsta kosti 3-0 fyrir Englands, evrópu og heimsmeistara united ekki nokkur vafi á því og ég ætla að leggja allt undir á lengjunni um að svo verði eða þannig en maður spyr sig.
mbl.is Jose Mourinho óttast ekki lið United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarna talar maður frá hjartanu og að sjálfsögðu er þetta rétt hjá honum !!

Nú reikna ég með að það verði stuð á bloginu, Slattinn frá Svíþjóð er maður að meiri að viðurkenna og segja nákvæmlega það sem allir vita. Að sjálfsögðu er hann miklu betri en þeir Shrek og serbneska ofurlaunadúkkan til samans það var nú samt gott hjá honum að hafa ekki fleiri en tvo í þessum samanburði það gæti skekkt myndina aðeins ef hann tæki Rónvald Rassmuss með í þennan samanburð það væri þá allavega á mörkunum. Ég hef grun um að hann setji mikinn svip á leikinn á morgun sem reyndar þarf ekkert að vera að spila frekar en menn vilja það á bara að drífa sig í seinni leikinn er ekki búið að semja um steindautt jafntefli á morgun hjá Rauðnef Rótara og Mourinjó músarrindli en maður spyr sig ......
mbl.is Ibrahimovic: Er betri en Rooney og Berbatov
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skyldi Oddman ofurhetja hafa haft rétt fyrir sér allan tímann ????

Er nema von að maður sé kominn með uppí kok á ruglinu sem er í gangi með Seðlabankann ?? Seðlabankastjórar beðnir góðfúslega að yfirgefa samkvæmið sem þeir og ætla að gera Eiríkur og Ingimundur en Davíð situr sem fastast og þá á að setja lög á kallinn því það er svo dýrt að reka hann og þá stendur 3ja hjólið undir ríkisstjórnarhjólinu upp og kemur Davíð til varnar enda hefur þetta kerfi skilað sér vel í gegnum tíðina fyrir Framsókn í bitlingum hér og þar. Ég get ekki að því gert að ég er gjörsamlega orðinn kjaftstopp á þessum hrossakaupum fram og til baka. Ég sé ekki að nýja Ísland undir forystu Jóhönnu Sig sé að breyta nokkrum sköpuðum hlut og nú er slökkviliðið komið í allt annað en að slökkva þá elda sem brenna á Íslandi, nú snýst allt um að tryggja sér þingsæti í komandi alþingiskosningum. Nú má byltingarliðið heldur betur fara að brýna skeiðarnar því það ER EKKERT AÐ GERAST nema slagorð sem engu skila. Bankastofnanirnar eru handónýtar og ekki nokkur möguleiki að þær geti stutt við bakið á arðvænlegum fyrirtækjum sem þurfa rekstrafé til að fleyta sér yfir erfiðasta hjallann þannig að þau enda í eigu bankanna, nú er forsjárhyggjan að yfirtaka allt og er það það Ísland sem við þurfum á að halda ?? Ég segi að við þurfum að blanda saman einkaframtaki og forsjárhyggju í jöfnum skömmtum með öllum þeim höftum sem þurfa að vera til að sama vitleysan endurtaki sig aftur en maður spyr sig...
mbl.is Skynsamlegt að bíða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glatað tækifæri næstbesta liðsins - nú á að hleypa öðrum í brúna að mínu mati ?

Ég get ekki að því gert að enn og aftur hugsa ég um hvort Benni Bjarti sé ekki kominn á leiðarenda með þetta lið ? Ég er einn af fáum sem hef ekki trú á því að hann hafi það sem þarf í að berjast alvörubaráttu en hvað veit ég svosem ??? Ég reyndar er klár á því að við munum hafa þetta af með smá meiri heppni og talsvert meiri hæfni. Ég vil fá Ofurtöffarann Mourinjó til að taka við liðinu og klára þetta verkefni, það er ekki að ástæðulausu að vitringarnir frá Usa eru ekki búnir að semja við Benna en maður spyr sig.??
mbl.is Enn eitt jafnteflið hjá Liverpool á Anfield Road
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sá í Kúlunni minni í morgun að þetta verður öruggur sigur Citymanna

Því miður verð ég að hryggja aðdáendur Liverpool og Benna bjarta með því að samkvæmt áræðanlegum heimildum sem alltaf hafa brugðist hingað til munu liðsmenn Benna lúta í hið margfræga gras í dag í eiginlegri merkingu þess orðs og er ég alveg klár á því að liðsmenn Marks Hugaðs munu setja ca 2 mörk hjá Reina Riddara. Nokkuð er kúlan góða viss um að eftir sem áður verður Torri á skotbuxunum í dag og setur eitt stykki  en maður spyr sig....
mbl.is Nær Liverpool að minnka forskotið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf Rauðnefur einhverja vörn - dómaratríóið tekur varnarleikinn fyrir hann !!

Rauðnefur Rótari, Páll Skúlls, Serbneska ofurlaunadúkkan, Rónvaldur Rasmus og Skrekkur hann sjálfur eru aldrei í vandræðum, hann er að sjálfsögðu að reyna að rugla Morhinnjó músarrindil í ríminu, að sjálfsögðu eru engin vandræði hjá Shitunited þetta er sálfræðibull sem minn maður reyndi að nota með svakagóðum árangri eða hitt þá heldur. Nú í vesta falli þá semur rauðnefur um úrslitin en maður spyr sig. hehe ???????
mbl.is Ferguson í vandræðum með vörnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei einfaldlega ekki hægt að keppa á þessum grundvelli !

Ekki er ég hissa á því ða Allihennardísu hafi verið hreint brjálaður á meðferðinni á sínum mönnum í dag. Ég nenni ekki að ræða þetta bull lengur ! Ég skal ræða við menn hvar og hvenær sem er á sanngjörnum nótum en ekki eins og þetta bull sem sást í dag og hefur sést í síðustu leikjum shitunited. 12 eða jafnvel 14 á móti 11 er of mikið en eigið góðar stundir með Illa fengin stig í farteskinu en maður spyr sig ...
mbl.is Manchester með átta stiga forystu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband