Færsluflokkur: Bloggar

Guð hjálpi honum því hann veit eigi hvers hann óskar sér??

Menn hafa verið lokaðir inni fyrir minni sakir en þessar en maður spyr sig.
mbl.is Pavlyuchenko dreymir um að spila fyrir Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað ekki ljúga þeir hjá UEFA er það ??

Hvaða lið kemur annað til greina, United. Chelsea, REal madríd Barcelóna og hvað öll hin smáliðin heita. HVernig væri að klára þessa umræðu um stofnun ofurliðadeildar sem búið er að ræða um svo lengi? Þá sé ég fyrir mér að LIVERPOOL yrði alltaf á toppnum en maður spyr sig ?
mbl.is Liverpool besta lið Evrópu samkvæmt lista UEFA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dabbi Kóngur fram á suðurlandi - ég er fluttur í Hveragerði eða á Selfoss!

Ekki er ég hissa þó Davíð Oddson sé orðaður við framboð og það í kjördæmi þar sem menn fá uppreist æru ef talið er að þeir hafi eitthvað gert sem ámælisvert er. Ég get ekki að því gert að mér finnast þetta frábærar fréttir ef réttar reynast. Að MÍNU ÁLITI er hann langt frá því að vera búinn og ég held að ef hann fer í framboð og kemst á þing þá sé hann klárlega sá sem getur hjálpað til við að byggja upp landið ÁFRAM DAVÍÐ. Hefur hann erindi sem erfiði maður spyr sig allavegna.
mbl.is Davíð í framboð á Suðurlandi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sinnaskipti Steingríms eru ótrúleg ?

Er þetta virkilega maðurinn sem stóð í ræðustólum alþingis og skammaðist og reifst við allt og alla um að ekki skyldi hlýtt afarkostum IMF og við ættum að neita að taka við þessari ölmusu og ef ekki ætti allt að fara til andskotans yrði hið snarasta að lækka stýrivexti ???? Sá sami Steingrímur segir nú ekkert svigrúm fyrir vaxtalækkun þótt allt sé farið til helvítis,fyrirtæki landsins mörg hver eru ekki starfhæf sökum fjárskorts, bankarnir taka engar ákvarðanir aðrar en að leysa til sín fyrirtækin hvert af öðru, bílafjármögnunarfyrirtækin hreinlega "stela" eignum "óreiðumanna" sem ekki hafa getað staðið í skilum af því þeir hafa enga atvinnu. Já fljótt skipast veður í lofti. Þetta er sami Steingrímur sem ætlar að slá "skjaldborg um heimilin" sem að sjálfsögðu eru innantóm orð eins og annað. Þessi sami Steingrímur ætlar örugglega að fá brautargengi i kosningunum til að geta haldið áfram að draga úr öllu sem hann hefur sagt hingað til ?? Ég segi bara það verður sami rassinn undir honum eins og öllum öðrum þegar þeir komast til valda ekki kem ég til með að kjósa í næstu kosningum miðað við það sem á undan er gengið en maður spyr sig ??
mbl.is Góðir fundir með IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norska krónan best - getum við ekki hengt okkur í hana ??

Ég er nú svo vitlaus í þessu en er ekki möguleiki fyrir okkur að hengja okkur á norsku krónuna án þess að taka upp þann gjaldmiðil. Væri ekki lag að láta reyna á það ??? "Sérfræðingar" okkar hafa verið að tala um að taka upp einhliða annan gjaldmiðil eða tengja okkur við einhverja mynt en er ekki lag að skoðum þennan möguleika ? Maður spyr sig.
mbl.is Norska krónan besti gjaldmiðill heims?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki að losna pláss í Seðlabankanum ?

Nú treystir Árni væntanlega á að vinir hans í Sjálfstæðisflokknum taki við eftir kosningar og dragi til baka þetta arfavitlausa frumvarp um seðlabankann og hann fái þar setu eða jafnvel sem forstjóri Landsvirkjunnar. Maður með hans record ætti ekki að verða í vandræðum með að fá vinnu ??? Nú svo á hann alltaf möguleika að starfa við það sem hann er menntaður til en maður spyr sig.


mbl.is „Nú fer ég að líta í kringum mig“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað er hann ekki að fara neitt hann veit hvað hann syngur oftast ??

Ég er reyndar einn af þeim sem er á því að hann nái ekki meiru út úr liðinu í Ensku deildinni en hann hefur margoft sýnt það að hann kann ýmis fræði þegar kemur að því að spila í meistaradeildinni og ekki að ósekju að hann er talinn einn sá snjallasti á sínu sviði þar. Það var hrein unun að horfa á liðið í gærkvöldi og er allt annað að sjá til liðsins nú en síðustu vikurnar. Það er eins og mótíveringunni heima fyrir sé eitthvað ábótavant NEMA ÞEGAR SPILAÐ ER VIÐ STÓRU liðin í deildinni þá virðast mínir menn vera rétt stefndir. Er ekki hægt að biðja hann að stjórna liðinu í meistaradeildinni og láta Samma LEE sjá um deildina heima ??? nei líklega gengur það ekki en maður spyr sig samt .kv. Tótinn
mbl.is Benítez: Er ekki á förum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uss þetta var nú auðveldara en að drekka vatn annað en hjá sumum !!

Hetjur Ráms í Real áttu ekki séns í mína menn í Liverpool í kvöld þó allar skrautfjaðrir Liverpool væru hvíldar eða voru meiddar þá kom það ekki að sök. Það var helst að hálkan á birnibangbang kæmu mínum mönnum á óvart. Geirharður glerharði var settur inn til að leyfa honum aðeins að snerta tuðruna og máta sig aðeins á vellinum ef hann skyldi einhverntíman í ellinni ákveða að skipta yfir í sólina. Allt annað var að horfa á þetta heldur en leiðindin í gærkvöld á ítalíu en nú er best að fara að kíkja á hm Curling en maður spyr sig.kv. Tótinn
mbl.is Liverpool skellti Real Madrid - Naumur sigur Chelsea gegn Juventus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað verður honum ekki refsað hann hafði hárrétt fyrir sér !!!

Eins og ég hef margoft bent á þá gætir aldrei samræmis í dómgæslu þegar United er að keppa við önnur lið, Rónvaldur Rassmuss og félagar féllu eins og dauðar flugur í hvert sinn sem þeir nálguðust vítateig Intermanna í gærkvöld og alltaf féll dómaraasninn í gildruna og ég lái aumingja Móra ekki orð hans en maður spyr sig.
mbl.is Mourinho sleppur við refsingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað sem menn kunna að segja um Davíð Oddsson þá kann hann þessa list manna best?

Ég er búinn að sveiflast milli þess að vera reiður út í Davíð og hreinlega finnast hann sá eini sem eitthvað veit um ástæður bankahrunsins eða allavegna sá eini sem hefur komið fram og sagst vita nákvæmlegu um hvað málið snerist. Ég hefði nú alveg viljað sjá einhverja pappíra til staðfestingar því sem Oddsson sagði. Ég er alveg klár á því að margt af því sem sagt var í gær á við rök að styðjast. Er eitthvað eðlilegt að útúr peningamarkaðsreikningum Landsbankans streymdu á annað hundrað milljarðar dagana fyrir hrunið eða að einn viðskiptavinur kaupþings hafi verið með á annað hundrað milljarða í yfirdrátt án haldbærra trygginga. Ég veit ekki annað en það sem orðið á götunni segir og það segir einfaldlega að sjóðir bankanna hafi nær verið tæmdir af vildarvinum eigenda vikurnar fyrir hrunið. Ég er einfaldlega á þeirri skoðun að hefði Davíð Oddsson haft einhver alvöru völd eða verið forsætisráðherra þá hefðu málin verið tekin mun fastari tökum en gert hefur verið en maður spyr sig... kv. tótinn
mbl.is Helgi Magnús: Davíð sendi bréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband