Færsluflokkur: Bloggar

Jóladagatal Tótans dagur tíu. Kæri Björn.

Nú toppaðirðu allt sem þið hafið gert hingað til: Öskrandi Mótmælandi W00t . Ertu alveg bandsjóðandi vitlaus. Hvernig haldið þið að ástandið á heimilinu sé orðið. Öskrandi mótmælandinnW00t ruddist inná baðherbergið og byrjaði strax að mótmæla eineygðu Esb aðildinniPolice og Kengbognu kreppunniAlien sem nú gráta hástöfum og nú er ekki orðið líft í allri blokkinni fyrir hávaða. Nágrannarnir sem eru sem betur fer allt útlendingar sem skilja ekki neitt í þessu eru búnir að setja okkur stólinn fyrir dyrnar þannig að við komumst ekki einu sinni út. Sem betur fer er Oddman ofurhetjaBandit hérna hjá okkur því það kom í ljós að þetta var ekki að hluta til nema draumur hjá mér í gær og Oddman ofurhetja sem var búinn að vara við þessu öllu kann sko að taka á þessum Öskrandi mótmælandaW00t . Aumingja mamma og sjóðheita gengishækkuninHeart skilja ekkert í þessum skrílslátum og eru búnar að loka sig inní eldhúsi og neita að koma fram fyrr en Oddman ofurhetja er búinn að koma þessum Öskrandi mótmælanda úr húsi. Aumingja IcesavereikningurinnGasp skilur sem betur fer takmarkaða Íslensku og veit því ekkert hvað Öskrandi mótmælandinn er að tala um, kosningar,lýðræði, burt með ykkur og valdið til fólksins er eitthvað sem er ekki til í hans orðaforða enþá. Ég segi það við þig nú máttu senda til mín argandi óeirðalögguna þína Ninja til að hreinsa út úr kofanum. Þinn Tótinn

Jólin koma - höldum friðinn !

Það er ekki að því að spyrja eins og Sigurður Helgi segir þá verður sumum allt að vopni þegar deilt er við nágrannann, ég get skilið að þetta fari í taugarnar á þeim sem fyrir þessu verður. Sama má kannski segja um þá sem lýsa upp heilu hverfin eins og friðarsúlan sjálf sé í garðinum hjá þeim það er spurning hvort vesalings flugmennirnir haldi stundum að þeir eigi að lenda í garðinum slík er ljósadýrðin hjá sumum. Ég hélt að þetta væri á undanhaldi væri svona meira 2007 en svo virðist ekki vera. Maður spyr sig Tótinn
mbl.is Jólasveinar valda deilum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og ekki hægt að segja þessu upp ???

Nei takk ég vil þetta ekki en að sjálfsögðu geri ég mér grein fyrir því að þessu verður ekki haggað, verður komið í 30 þúsund kallinn áður en maður veit af sveiattann þetta má ekki.

kv. Tótinn


mbl.is Gjald vegna RÚV verður 17.900
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auglýsti andlát samfanga síns - allt er nú til..

Þessa menn á að setja í nýsköpunarverkefni hið snarasta þetta held ég að sé í fyrsta sinn sem svona lagað er gert á Íslandi. Toppar keðjubréfa,herbalife,pýramídaruglið held ég. Dauðans alvara sem ekki á að hafa í flimtingum ? Maður spyr sig. Tótinn


mbl.is Auglýsti andlát samfanga síns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóladagatal Tótans dagur níu. - Kæra þjóð!

Nú er það svakalegt. Vaknaði 6:30 leit á klukkuna sem sýnir líka dags. og ártal. Dagurinn er 14.maí og árið er 2007 í útvarpinu er verið að segja frá blaðamannafundi sem standi yfir í svörtuloftum ég kveiki á sjónvarpinu og er ekki mr. Oddman ofurhetja Bandit í pontu og er að skýra þjóðinni frá því að hann hafi sagt FME frá stórfelldri svikamyllu útrásarvíkinga landsins og eftir að FME hafi ruðst inní fyrirtæki þeirra og lagt hafi verið hald á gögn SÉ búið að komast fyrir stærsta rán Íslandssögunnar og jafnvel heimsins. Allar eigur þessara snillinga hafi verið gerðar upptækar og komið í hendur réttra eigenda, búið sé að leggja niður alla innlánsreikninga erlendis hverju nafni sem þeir nefnast og útibú Landsbúnaðarglitnisbanka sparisjóðanna sem forsetinn ætlaði að opna með pompi og pragt í DÚBA'I verði ekki opnað. Um mig fór sæluvíma þar sem ég sá fram á að Oddsman ofurhetja Bandit væri búinn að koma í veg fyrir Kengbognu KreppunaAlien, Vælandi vísitöluna, sjóðheitu gengishækkuninaHeart, karamelluhúðuðu gengisfellinguna Blush og síðast en ekki síst Eineygðu Esb aðildinaPolice sem hafa riðið húsum hjá okkur mömmu síðustu dægrin ? En ó minn auman er ég loksins vaknaði af værum blundi þá komst ég að því að þetta var bara draumur og mér líður eins og Bobbý í Dallas. Ég ætla að leggja mig aðeins aftur og sjá hvort ég geti ekki upplifað þetta uppá nýtt. Þinn Tótinn

Það sem koma skal á Íslandi?????

Svo sannarlega vona ég að ekki komi til þess að það slasist neinn alvarlega í þessari mótmælaöldu sem nú gengur yfir en það er aldrei hægt að útiloka neitt. Eins og dæmin sanna þá eru lögreglumenn á Íslandi því miður jafn misjafnir og þeir eru margir. En ég tek hatt minn ofan fyrir þeim hvernig tekið hefur verið á þeim mótmælum sem hingað til hafa verið hér en maður veit aldrei því sjaldan veldur einn þá tveir deila. Stillum nú þessum mótmælum í hóf til að ekki skapist hér ófremdarástand(meira en orðið er) Kv .Tótinn
mbl.is Enn óeirðir í Aþenu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóldagatal Tótans dagur átta.- kæri Steingrímur.

Ert þú kominn aftur ?Var ég ekki búinn að segja þér að koma ekki nema þú værir með lausnir og hvað gefurðu mér ? Jú argandi aðgerðapakkaW00t . Eins og það sé ekki nógu erfitt hér fyrir ? Vælandi vísitalan varð ekkert sérstaklega ánægð með þetta og flúði inní fataskáp. Ég þakka þér nú samt kærlega fyrir að taka frá mér karamelluhúðuðu gengisfellinguna eða ég vona að þú hafir tekið hana, hún var allavegna horfin í morgun og þú ættir að sjá glottið á sjóðheitu gengishækkuninniHeart, ég hef hana reyndar grunaða um að hafa étið gengisfellinguna upp til agna. Icesavereikningurinn er orðinn fárveikur og er búinn að hertaka rúmið mitt og ég þurfti að sofa á gólfinu. Mamma er búinn að hóta að henda mér út og segir að ég hafi kosið þetta yfir mig ?? Ég veit að þú ert að reyna að bæta mér upp tóma umslagið frá því um daginn en eins og þetta hafi bjargað einhverju ??? Argandi aðgerðapakkinn er að reyna að vingast við eineygðu gengisfellinguna og kengbogna kreppan Alien er að reyna að stía þeim í sundur. Nei við skulum bara halda áfram að vera svona pínulítið á móti kallar ég held að það hafi verið betra. Þinn Tótinn 

Er engin leið að stoppa þetta ???

Ég get ekki að því gert að MÉR finnst að þetta sé komið út í tóma vitleysu og segi enn og aftur: GEFUM ÞEIM SMÁFRIÐ TIL AÐ REYNA AÐ LEYSA MÁLIN. Er þetta ekki of mikið af því góða ?????

Maður spyr sig ? Tótinn


mbl.is Mótmæli við Ráðherrabústaðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er 2007 í hnotskurn Skamm!!

Það vantar lög á svona lagað heitir þetta ekki kennitöluflakk ?? Einhversstaðar las ég að í ákveðnum löndum sé þeim sem setja fyrirtæki á hausinn BANNAÐ að koma nálægt fyrirtækjarekstri í ákveðinn tíma en ekki á Íslandi onei hér er fyrirtækið keyrt í gjaldþrot, aflúsað af skuldum og selt og hverjir eignast það aftur skuldlítið ? jú þeir sem settu það í þrot. Hver situr uppi með sárt ennið jú þeir sem áttu kröfurnar. Er þetta hægt ? jú löglegt er það væntanlega en er það siðlegt? Maður spyr sig?? Totinn
mbl.is Next og Noa Noa aftur í eigu sömu hjóna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei þetta er of mikið af því góða !

Er ekki hægt að leyfa fólki að fá vinnufrið. Það er eitt að mótmæla en annað að haga sér svona. Þetta er mitt mat og ég leyfi mér að hafa þessa skoðun hvað sem hver segir. Kv. Tótinn
mbl.is Ólæti á þingpöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband