Færsluflokkur: Bloggar

Nei nú er ég hissa - góð frétt en ?

Ætli ekki verði einhver leið að halda þeim óbreyttum td. með því að hækka stýrivexti aðeins til að passa að þetta gerist ekki. Maður spyr sig. Tótinn
mbl.is Dráttarvextir lækka um 4% um áramót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og fást væntanlega aldrei ?

Það þarf ekkert að upplýsa okkur almenning um svona tittlingaskít. Bretinn má gera það sem honum sýnist og eini sem virðist vita um málið alias Oddman ofurhetjaBandit  neitar að skýra frá ástæðum og ber fyrir sig bankaleynd. Á að fara í mál við Bretann ? Það virðist ekki vera vilji fyrir því eða þá að málið er svo viðkvæmt að það má ekki rugga bátnum. Væri ekki lag að upplýsa okkur sem eigum að borga brúsann aðeins um stöðuna ? Maður spyr sig. Tótinn
mbl.is Veita enn ekki viðunandi svör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiga þeir semsagt eitthvað enþá?

Já maður á ekki orð nú hefst hringekjan, Netia og Play kaupa Novator og selur svo aftur til Rotanov sem aftur selur AiteN og Yalp sem breyta nafninu í Netia og Play og selja svo sjálfa sig til Novator sem eignast þau síðan aftur á lágmarksverði eða er það ekki. Maður spyr sig.
mbl.is Engar ákvarðanir um sölu símafélaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóladagatal Tótans dagur 11.- kæru Geir og Ingibjörg. Farvel!

Jú þið stóðuð við allt sem IMF sagði. Leit í skóinn minn í morgun og jú þessi líka flotta Happaþrenna. Ég hugsaði sem svo að nú væri allt orðið gott aftur, Stekkjarstaur hefði komið í nótt og gefið mér eðlilegan hlut. Ég skóf af fyrsta glugganum og jú þar stóð 14% jú það er hækkunin á bjórnum ! næst var svo 1% jú mikið rétt skattahækkun, 12,5 % vörugjalda bensín og hvað þessar hækkanir ykkar heita allar. Takk fyrir ekki neitt. Skóf af bónusglugganum um hvað ég hefði unnið og viti menn þar var mynd af litlum árabáti jibbý.  Lagði við hlustir og jú það var hljótt í húsinu. Hvað er í gangi. Ég ætlaði ekki að trúa þessu. Stóð á fætur og opnaði fram, allt hljótt, enginn grátur, enginn icesave,engin sjóðheit gengishækkun Heart engin Oddman ofurhetjaBandit, engin eineygð esbaðildPolice Engin kengbogin kreppaAlien , engin Mamma og engar rúsínukökur. Ég kjagaði fram á gang og heyrði ekkert en allt vað uppljómað. Hljóp út á götu, allt uppljómað í stórborginni Kópavogi en enginn á ferð. Fór að gruna ýmislegt, hvar voru allir ? Í Reykjavík var sama sagan , sama hvar litið var enginn á ferð en allt uppljómað. Hvert fór fólkið ? Hljóp inná Reykjarvíkurflugvöll og þar var engin flugvél engin einkaþota, ekkert. Ég er að missa það tek straujið niður á höfn, enginn bátur í höfn ekkert. Jú ekkert nema miði á ljósastaur og á honum stóð. Við erum farin úr landi , sá sem síðastur fer á að taka af rafmagnið kv. Ríkisstjórn íslands og Íslenska þjóðin. Mér reiknaðist til að ég væri síðastur og því voru góð ráð dýr hvernig átti ég að komast ? Jú í vasa mínum var happaþrennan góða og ég leit á hana aftur og jú árabáturinn sem ég vann hann hlýtur að vera hérna einhversstaðar ? ég kom auga á hann við bryggjuna og klifraði um borð. Teygði mig í rofann og tók af rafmagnið, skrúfaði fyrir vatnið og lagði í hann. Söng við raust ship og hoj ship og hoj og svo nýja í næstu höfn og svo nýja í næstu höfn. Farvel Ísland, farvel kæra þjóð, farvel kæra ríkisstjórn og takk fyrir ekki neitt. Er þetta framtíð landsins. Maður spyr sig. Kveðja Tótinn

Vinnustaðagrín sem gekk fulllangt ?

Jú það má kalla litla hraun vinnustað eða hvað menn vilja en mér fannst þetta snilldargrín. Aallavega fékk þetta mig til að brosa út í bæði. Þetta heitir að taka hlutina alla leið en maður spyr sig hvort einhver lög voru brotin með þessu ef enginn lagði inná reikning mannsins ?  Meira grín í dagsins önn er dagskipunin en kannski ekki með alveg svona svörtum húmor en kannski á þannig húmor best við í dag.
mbl.is Grín sem gekk of langt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarfagreining er málið - kannski aðeins of seint í rassinn gripið.

Afhverju hefur aldrei verið farið í alvöru þarfagreiningu á því hvað það er sem vantar á nýbyggingamarkaðinn ? Ég eins og fleiri hef bent á það í nokkur ár að það er vaðið í að byggja og það allt á sömu nótunum. Hverjum vantar 110 fm 3ja herbergja íbúð þegar 75-80 fm nægja ? eða 140 fm 4ra herbergja íbúð en 100 fm ætti að vera feykinóg. Ég hef rætt það við marga byggingarmeistara síðustu árin að þeir ættu að reyna að fá að byggja "Hraunbæjarkjarna" aftur þ.er íbúðir fyrir venjulegt fólk sem hvort eð er staldrar ekki lengi við í þeim stærðum sem þar eru þá væri nú öldin eitthvað önnur. Allar eignir í dag skulu með bílageymslu eða bílskúr. Í Hraunbænum svo ég taki dæmi þá eru 50-60 fm 2ja herb. íb. 75-80 fm. 3ja herb. íb. og 95-110 fm 4ra herb. íbúðir, engin bílskýli skúrar eða slíkt (nema það sem byggt hefur verið eftirá og ekkert er að því að gera ráð fyrir slíku á lóðinni.) Fermetraverðið sem hefur verið í nýjum íbúðum ca 230-250 þúsund og uppúr myndi því leggja 3ja herbergja íbúð á ca 17-18 millj. , 4ra á frá ca 21 millj. og þá væri um að ræða viðráðanlegan kost fyrir unga jafnt sem aldna. En nei það er byggt og byggt og allt í stórum stærðum XXXXL og þá er verðið komið útfyrir greiðsluramma venjulegs launafólks. Maður spyr sig. Tótinn
mbl.is Segja fjölda nýbygginga ýktan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofurlaun - hvar eru mörkin ??

Að sjálfsögðu á að skoða þetta allt saman frá grunni, hvað eru ofurlaun ?? eru það ofurlaun að hafa tíföld laun verkamanns jú líklega eru það ofurlaun og langt úr takti við það sem er að gerast í dag. Það er ekki spurning að það á að endurskoða í launaflokkum hjá Ríkinu eins og er að gerast allstaðar í þjóðfélaginu. En ég spyr þá einfaldlega: ef satt er að stjórnendur lífeyrissjóðanna séu með allt að 30 milj. í árslaun flokkast það þá undir ofurlaun ??? Nei það er hrein og klár græðgi og menn ættu að skammast sín fyrir svona bull. Maður spyr sig. Tótinn
mbl.is Vill lækka laun ríkisforstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilskipun frá IMF ?

Já væntanlega er verið að fylgja eftir tilskipun frá IMF til að geta fengið meiri pening frá þeim í kassann. Menn standa blóðugir uppað öxlum að sögn Steingríms og ég held að þetta sé því miður bara byrjunin ? Er ekki sláturtíð haustsins liðin ? nei líklega ekki. Maður spyr sig. Tótinn
mbl.is Blóðug fjárlög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankaleynd - hver á Bankana ??

Að sjálfsögðu á ekki hver sem er að geta valsað í upplýsingar um almenning en það er spurning hvort að ekki verði á einhvern hátt að vera hægt fyrir rannsóknarðaðila þá sem kunna að rannsaka "hrunið" að fá upplýsingar í bönkunum. Ég sé ekki að það verði neitt að finna ef alltaf verður hægt að fela allt á bakvið bankaleyndina. Breyta lögunum strax en að sjálfsögðu á að gæta réttlætis. Maður spyr sig Tótinn
mbl.is Fá engin svör frá bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já var það ekki - ekki var nú svo sem von á öðru.

En hátekjuskatturinn hvað verður um hann, væntanlega verður ekki mikið innheimt í fjármagnstekjuskatt á næsta ári gæti ég trúað. Milljarðar undir koddunum hjá eignamönnum gefa enga ávöxtun og engan fjármagnstekjuskatt. Jú þá er lag að hækka á alla hina. Þetta er klárlega bara byrjunin. Nefskattur útvarps ohf. Hækkandi tekjuskattur nú fylgir allt hitt á eftir, vörugjöld, bensíngjald. Maður spyr sig Tótinn
mbl.is Tekjuskattur og útsvar hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband