Færsluflokkur: Bloggar
8.12.2008 | 14:27
Veit ekki með meirihluta ??
![]() |
Meirihluti telur mótmæli endurspegla viðhorf þjóðarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.12.2008 | 12:30
Ég lofa því líka !
![]() |
Obama lofar að reykja ekki í Hvíta húsinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2008 | 11:50
Nammi namm ?
![]() |
Grunur um salmonellu í kjúklingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.12.2008 | 11:09
Ætli þetta hangi ?
Það er spurning hversu lengi þetta hangir ??? en það er á meðan er. Ætli þessu verði ekki náð af okkur einhvernveginn ?????? Maður spyr sig Tótinn
![]() |
Eftirstöðvar gengistryggðra lána minnka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2008 | 10:26
Everton þriðja besta liðið í Liverpoolborg ?
Sannar þetta ekki hið fornkveðna að Everton sé þriðja besta liðið í Liverpoolborg á eftir aðal og varaliði Liverpool. Maður spyr sig. Tótinn
![]() |
O'Neill: Ótrúlegur endir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.12.2008 | 09:44
Jóladagatal Tótans dagur sjö - kæri Össur.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.12.2008 | 17:08
Jóladagatal Tótans Dagur sex - Kæra Ingibjörg S .









Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.12.2008 | 18:57
Jóladagatal Tótans upprifjun dagar 1-5.
Ég þakka þér ofboðslega fyrir sendinguna í gærkvöldi . En svakalega var ég skúffaður þegar að í ljós kom að það var ekkert í umslaginu sem þú gafst mér nema einn lítill blaðsnepill sem á stóð: Ég er á móti. Gengisfellingin og Icesave reikningurinn fóru í hár saman og voru að rífast um hvorum þú værir meira á móti. Ég reyndi að stilla til friðar og segja þeim að þú værir rosa góður kall en værir bara svona almennt á móti öllu. Þau trúðu mér ekki og ég sit hérna eftir með svakaglóðarauga og er að drepast í hausnum. Mamma er komin heim en er ekki mönnum sinnandi og ég held að hún sé líka að verða svona fúll á móti týpa. Ég verð að segja það að ég er líka að verða svona pínulítið á móti kall eins og þú en ég get bara ekki ákveðið alveg hverju ég á að vera á móti. Ég vona að þú komir aftur í kvöld og þá verði sko lausnir í umslaginu frá þér. Kær kveðja þinn Tótinn Jóladagatal Tótans dagur fjögur - Kæri Árni M.Þú kominn í leitirnar og ég varð ekkert lítið hissa þegar ég fékk frá þér kengbognu Kreppuna . Þú hefðir átt að sjá upplitið á Icesave reikningum og Karamelluhúðaðri gengisfellingunni þær urðu ekkert smá vandræðalegar enda um afkvæmi þeirra að ræða. Gengisfellingin varð alveg æf út í Icesavereikningin fyrir að gera ekki ráðstafanir til að verjast þessum getnaði eins og Davíð var búinn að biðja um og nú talast þau ekki við og andrúmsloftið er orðið þrúgandi. Kengbogna kreppan situr bara róleg, étur upp allar eigur okkar mömmu og mamma tekur þetta svo nærri sér að hún tímir ekki orðið neinu. Árni það er þér að kenna að núna tímir hún ekki að setja rúsínur í jólakökurnar sem mér þykja svo góðar af því að kreppan er búinn að éta þær allar og ekki er hægt að kaupa nýjar út af gengisfellingunni. Mamma mín er að jafna sig aðeins á þessu en hún er búinn að taka skóinn úr glugganum til öryggis og hún skrúfaði aðra hvora peru úr jólaljósunum til að spara rafmagnið allt út af þessari fjandans kengbognu Kreppu. Mikið svakalega obboðslega væri ég glaður ef þú gætir komið og náð í vini þína svo ég eigi gleðileg rúsínujól. Þinn vinur Tótinn Jóladagatal Tótans dagur fimm -Kæri Davíð !Ja hérna þú aftur það gat nú svo sem verið að þú þyrftir að troða þér aftur, ekki misskilja mig undir öllum venjulegum kringumstæðum hefði ég verið ekkert smá ánægður með að fá það sem þú gafst mér en eins og þú veist þá eru heimilsaðstæður okkar ekkert venjulegar núna og ég veit alveg að ég bað um þetta en kommon. Sjóðheita gengishækkun ! Veistu hvað þú ert búinn að gera mér? Kengbogna Kreppan og Karamelluhúðaða Gengisfellingin eru flúnar inní herbergi og neita að láta sjá sig fyrr en hún er farin til baka og ég verð að sofa í stofunni með Icesave reikningnum sem er orðinn eitthvað svo fölur. Mamma hins vegar er hæst ánægð og er búin að ráða pólverjann aftur í vinnu. Heldurðu að hún sé ekki búin að bjóða Sjóðheitu gengishækkuninni að búa hjá okkur og nú talar hún ekkert við mig en hún fór beint með gengishækkunina út að versla og búrið hennar er fullt af rúsínum og karamelluhúðaða gengisfellingin og kengbogna kreppan eru komnar í pillurnar hennar. Perurnar í jólaskreytingunni eru allar komnar í aftur og mamma er búin að segjast ætla að kjósa þig ef jólasveinaflokkur þinn bjóði fram í næstu kosningum. Við Icesave reikningurinn erum búnir að fá nóg og ætlum út að skemmta okkur saman, hann segist hafa aðgang að einkaþotu og við ætlum að skjótast til Akureyrar ég reikna með að þurfa að borga það allt sjálfur. Mér er alveg sama þó þú hafir ætlað að vera eitthvað fyndinn en þetta er of mikið af því góða. Ég ætla ekki að vera vanþakklátur en gerðu það taktu eitthvað af þessum kvikindum með þér ef þú kemur aftur. Þinn vinur Tótinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.12.2008 | 15:35
Biðja fyrir Davíð og Ríkisstjórninni.
Er ekki rétt að biðja fyrir Davíð kallanganum og Geir Haarde í þeim ólgusjó sem nú gengur yfir þá félagana það held ég að veiti ekki af. Gefum þeim smáséns á að klára þetta er það ekki. Maður spyr sig.
Tótinn
![]() |
Báðu fyrir landi og þjóð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.12.2008 | 16:37
Karíokí dauðans ???
![]() |
Karaókí-söngvari myrtur í Malasíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)