Færsluflokkur: Bloggar

Fimm leikja bann ekki spurning:

Setjum hann í fimm leikja bann. Ekki spurning. Shrek á ekkert betra skilið, traðka á mótherjanum. Maður spyr sig. tótinn
mbl.is UEFA ákveður á mánudag um sekt eða sakleysi hjá Rooney
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífið er púl, Liverpool

Eins og einhver sagði Takk Zola. Drengirnir hans Björgólfs héldu okkur Liverpoolurum á toppnum allavegna fram í næstu viku. Ég er reyndar orðinn hundleiður á þessum ræfilsskap í mínum mönnum en það er vonandi betri tíð framundan með blóm í haga ?? Maður spyr sig. Tórinn

Jólasveinar einn og ellefu - Kæri Stúfur.

Já þú ert þá þarna Stúfur minn. Ég hélt að þú værir í fýlu af því að það voru allir að skamma þig fyrir að vita ekki að álfarnir sem þú skipaðir til að endurskoða Glitnibanka hefðu áður verið að endurskoða alla stóru kallana sem fengu mest í skóinn síðustu árin. Er það rétt sem sagt er að þú hafir líka viljað henda greyjinu honum leppalúða á svörtuloftum út úr hellinum ?? Þetta er pabbi ykkar og þið verðið að vera góð við hann, hann var líka búinn að segja ykkur frá öllum vondu köllunum sem voru að stela.
Ég þakka þér nú samt fyrir að setja  vörugjaldahækkunina í skóinn minn í nótt ég neyðist víst samkvæmt Stekkjastaur og Gilja- gauru að taka við þessu. Kær kveðja Tótinn


Jólasveinar einn og ellefu - Gilja - gaura.

Jú kæra Gilja-gaura. Þú hefur þá haft það af að komast til að gefa í skóinn þetta árið og það þrátt fyrir að Stekkjastaur hafi komið í gær og þú sért víst í ekkert smá vondu skapi útí hann og hótar að hætta í Jólasveinasamstarfinu nema hann samþykki að ganga í Jólasveinaklúbbinn í Brussel og henda Leppalúða á svörtuloftum út úr hellinum. Hvert á hann að fara greyjið ? Það vill enginn fá hann, hann skrifar kannski endurminningar sínar og þá verður sko skotið fast á allt og alla og þá kemur kannski í ljós að þið hafið verið að gefa mjög óþekkum börnum í skóinn síðustu árin. Sagan segir að sumir hafi fengið heila banka meðan aðrir og þar á meðal ég eina lásí happaþrennu eða kartöflu. Þú verður að passa þig á leppalúða þó hann sé pabbi þinn þá ert þú ekkert í neinu uppáhaldi hjá honum. Takk samt fyrir að hafa gefið mér olíugjaldshækkun í skóinn ég er þó þakklátur fyrir að það var ekki meira, Stekkjastaur sagði nefnilega að við yrðum að sætta okkur við allt sem frá ykkur kæmi þetta árið. Kær kveðja Tótinn

Jólasveinar einn og ellefu. - Stekkjastaur kom fyrstur....

Já kæri Stekkjastaur ég varð ánægður með það þegar ég frétti að þú hefðir komist til byggða. Það hlýtur að hafa verið erfitt fyrir þig þar sem pabbi þinn hann leppalúði á svörtuloftum er búinn að vera að stríða þér ekkert smá síðustu mánuðina og helst sýnist mér að hann vilji fá störf ykkar systkinanna ? Þú hefur líka átt í smávandræðum sýnist mér með Engilsaxnesku jólasveinana í bretalandi. Að þeim skyldi detta í hug að þið væruð hryðjuverkamenn fæ ég ekki skilið, eina sem þið sögðuð var að þið hefðuð ekkert með börnin í útlöndum að gera og gæfuð ekki í skóinn nema á Íslandi. Það er alveg skiljanlegt ég get ekki séð hvernig þið hefðuð átt að komast yfir allt hitt nema að fá öll börn á Íslandi til að hjálpa ykkur og að sjálfsögðu kom það ekki til greina af ykkar hálfu ja svona allavegna ekki til að byrja með. Ekki voru vinir ykkar þ.e. Jólasveinastóðið í Brussel að hafa áhyggjur af 12 jólasveinum á Íslandi onei þið gætuð alveg séð um þetta sjálfir ég hélt að þið væruð með samtök jólasveina?. Ég þakka þér allavegna fyrir 12,5 % jólabjórshækkunina sem ég fékk í skóinn á fimmtudaginn. Kv.Tótinn 


Betur má ef duga skal en allt í áttina.

kannski verður ekki ferðast með einkaþotum á næsta ári, þetta er bara mjög gott mál. Væntanlega þarf heldur ekki að opna mörg bankaútibú eða ný sendiráð á næsta ári. Maður spyr sig. tótinn
mbl.is Sparað í ferðakostnaði á næsta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóladagatal Tótans Upprifjun dagar sex,sjö og átta.

Jóladagatal Tótans Dagur sex  - Kæra Ingibjörg S .Já dauða mínum átti ég von á mín kæra frekar en þessu. Eineygða ESB aðild og það fæ ég þrátt fyrir að ég hefði ekki komið heim fyrr en alltof seint eftir strangt ferðalag með Icesavereikningnum til akureyrar. Það kom mér ekkert smá á óvart að þar vildi enginn hafa neitt með hann að gera svo ég varð að koma með hann heim aftur. Eineygða Esb aðildin tók strax öll völd á heimilinu og sjóðheita gengishækkunin, Kengbogna Kreppanog Karamelluhúðaða gengisfellingineru búnar að taka yfir baðherbergið hjá okkur mömmu harðneita að opna og ég er að verða geðveikur og farinn að hakka í mig dísurnar hennar . Mamma og pólverjinn eru í verslunarferð og nú á víst að klára íbúðina loksins enda segir mamma að hún sé svo rík eftir Sjóðheitu Gengishækkunina hans Davíðs frá því í gær að hún sé að spekúlera í að kaupa nýja fokhelda íbúð ?  Eineygða ESB aðildin stendur uppá stól og flytur lofræður allan daginn um einhverja kalla útí Brussel sem ætla að verða voða góðir við okkur ef við bara látum þá fá fiskinn okkar,rafmagnið okkar og vatnið okkar en ég er búinn að reyna að segja henni að það eina sem við getum látið kalllana hafa eru JÓLASVEINARNIR okkar. Og Icesavereikningurinn er farinn að taka undir með Eineygðu Esb aðildinni og söngurinn er að drepa mig. Ég segi það við þig eins og ég sagði við Davíð plís taktu þessi kvikindi með þér næst þegar þú kemur ég get þetta ekki lengur. Þinn Tótinn.


Jóladagatal Tótans dagur sjö - kæri Össur.
Nei nú er mér nóg boðið, vælandi vísitala ! hvur andsk..... (fyrirgefið orðbragðið)gengur ykkur eiginlega til ?? Hvað haldið þið að hafi gerst ? jú Vælandi vísitalan er búinn að setja allt á annan endan hérna inni, Kengbogna Kreppan og Karmelluhúðaða gengisfellingin blása út eins og púkinn á fjósbitanum, eineygða Esb aðildin og Icesavereikningurinn eru komnir í hár saman og hvernig haldið þið að mamma og sjóðheita gengishækkunin hafi það eiginlega ? Jú laukrétt þær gráta bara og allur ávinningur helgarinnar er horfinn, mamma slökkti á jólaseríunni og er farin að plokka rúsínurnar úr kökunum og ég er alveg sjóðbandbrjálaður. og ég sem hélt að ég væri búinn að bjarga jólunum á vaxtalausu láni sem ég þarf ekki að byrja að borga af fyrr en í vor en vælandi vísitalan verður búinn að éta upp launin mín þegar þar að kemur og ég verð ekki búinn að borga þetta fyrr en jólin 2011.  eineygða Esb aðildin er búin að telja Icesavereikningnum trú um að gangi Ísland í ESB þá mun bretinn vilja hann aftur og Icesavereikningurinn sem rétt áðan var kominn í hörkurifrildi við eineygðu Esb aðildina er kominn með útrásarfíling og var að spá í að skella sér í frí til Bretalands en þá kom vælandi vísitalan í veg fyrir það.  Nei má ég nokkuð biðja ykkur að sleppa mér í nótt gerið það nema eitthvað gott komi frá ykkur !!!!! Þinn Tótinn

Jóladagatal Tótans dagur átta.- kæri Steingrímur.
Ert þú kominn aftur ?Var ég ekki búinn að segja þér að koma ekki nema þú værir með lausnir og hvað gefurðu mér ? Jú argandi aðgerðapakka. Eins og það sé ekki nógu erfitt hér fyrir ? Vælandi vísitalan varð ekkert sérstaklega ánægð með þetta og flúði inní fataskáp. Ég þakka þér nú samt kærlega fyrir að taka frá mér karamelluhúðuðu gengisfellinguna eða ég vona að þú hafir tekið hana, hún var allavegna horfin í morgun og þú ættir að sjá glottið á sjóðheitu gengishækkuninni, ég hef hana reyndar grunaða um að hafa étið gengisfellinguna upp til agna. Icesavereikningurinn er orðinn fárveikur og er búinn að hertaka rúmið mitt og ég þurfti að sofa á gólfinu. Mamma er búinn að hóta að henda mér út og segir að ég hafi kosið þetta yfir mig ?? Ég veit að þú ert að reyna að bæta mér upp tóma umslagið frá því um daginn en eins og þetta hafi bjargað einhverju ??? Argandi aðgerðapakkinn er að reyna að vingast við eineygðu gengisfellinguna og kengbogna kreppan  er að reyna að stía þeim í sundur. Nei við skulum bara halda áfram að vera svona pínulítið á móti kallar ég held að það hafi verið betra. Þinn Tótinn 

Jóladagatal Tótans dagur níu. - Kæra þjóð!Nú er það svakalegt. Vaknaði 6:30 leit á klukkuna sem sýnir líka dags. og ártal. Dagurinn er 14.maí og árið er 2007 í útvarpinu er verið að segja frá blaðamannafundi sem standi yfir í svörtuloftum ég kveiki á sjónvarpinu og er ekki mr. Oddman ofurhetja í pontu og er að skýra þjóðinni frá því að hann hafi sagt FME frá stórfelldri svikamyllu útrásarvíkinga landsins og eftir að FME hafi ruðst inní fyrirtæki þeirra og lagt hafi verið hald á gögn SÉ búið að komast fyrir stærsta rán Íslandssögunnar og jafnvel heimsins. Allar eigur þessara snillinga hafi verið gerðar upptækar og komið í hendur réttra eigenda, búið sé að leggja niður alla innlánsreikninga erlendis hverju nafni sem þeir nefnast og útibú Landsbúnaðarglitnisbanka sparisjóðanna sem forsetinn ætlaði að opna með pompi og pragt í DÚBA'I verði ekki opnað. Um mig fór sæluvíma þar sem ég sá fram á að Oddsman ofurhetja væri búinn að koma í veg fyrir Kengbognu Kreppuna, Vælandi vísitöluna, sjóðheitu gengishækkunina, karamelluhúðuðu gengisfellinguna og síðast en ekki síst Eineygðu Esb aðildina sem hafa riðið húsum hjá okkur mömmu síðustu dægrin ? En ó minn auman er ég loksins vaknaði af værum blundi þá komst ég að því að þetta var bara draumur og mér líður eins og Bobbý í Dallas. Ég ætla að leggja mig aðeins aftur og sjá hvort ég geti ekki upplifað þetta uppá nýtt. Þinn Tótinn


Mission Jónínu Ben. - Mission impossible ?

Ég get ekki að því gert að eftir að hafa hlustað á viðtal/samtal Jónínu B. og Reynis Traustasonar á í bítið á bylgjunni þá sýnist mér Jónína því miður ekki geta farið í gegn um heilt viðtal án þess að koma að því máli sem hún er með á heilanum það eru baugsfeðgar. Eins og ég hef nú haft gaman af því að hlusta á sumt sem Jónína hefur haft fram að færa í gegn um tíðina sem byrjaði með líkamsræktarbyltingu hennar sem varð meðal annars til þess að ég reif mig upp á rassg. og fór að æfa fyrir margt löngu og hefur væntanlega orðið til þess að ég bý yfir ágætis heilsu í dag eftir áralanga kyrrsetu. Síðustu árin hefur hún verið með þá feðga (sem ég þekki ekkert meira en fram hefur komið í fjölmiðlum )algjörlega á heilanum og er það miður því að mér finnast margar þær hugmyndir sem fram hafa komið frá þeirri annars ágætu konu. Hún hefur að mínu mati ýmislegt fram að færa um hvernig við eigum að byggja upp nýja framtíð á hinu Nýja Íslandi sem klifað hefur verið á síðustu dægrin en ég fæ alltaf einhvern aulahroll þegar hún þarf alltaf að troða illsakir við þessa menn þegar hún kemst á flug. Það getur vel verið að þeir hafi gert eitthvað sem athugunar er vert og er ég ekki neinn talsmaður þeirra viðskiptahátta en til þess höfum við dómstóla sem hafa sýknað þá af þeim ákúrum sem á þá var borið(að mestu) Einhvert smáræði var dæmt á Jón Á. en Jóhannes og hans fólk að öðru leiti var sýknað og mér er spurn Jónína er ekki réttara að setja fortíð þína gagnvart þessum mönnum afturfyrir sig og snúa þér að alvöru málum sem bíða fólks með hugmyndir á borð við þínar. Ég hef grun um að þú verðir ekki tekin alvarlega fyrr en við sjáum að þetta sé ekki það sem þig drífur áfram þ.e. að koma höggi á þessa einstaklinga og fyrirtæki þeirra ? Komdu nú með alvöru hugmyndir sem þú telur að hjálpi okkur út úr þeirri stöðu sem við erum í og þá er aldrei að vita nem þær hljóti brautargengi því okkur vantar fólk í framboð með alvöru hugmyndir en ekki biturt fólk sem er eingöngu að reyna að koma höggi á einhvern eða einhverja þá sem kunna að hafa gert á þeirra hlut. Maður spyr sig. Tótinn.

Einstök fyrirmynd - nú er ríkið næst ???

Alveg sama hvað hver segir þá er þetta fyrirmynd sem aðrir ættu að taka sér til fyrirmyndar 25% á forstjórann er flott lækkun og nú verður gaman að sjá hvort ríkið lækkar laun forstjóranna hjá sér um svipaða tölu ??? maður spyr sig. Tótinn
mbl.is Laun stjórnenda LV lækkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljótt ef satt er - bankaleynd skal halda.

Orðrómur er í gangi  um að ef kaupþing í lúx verði gert gjaldþrota þá opnist allar upplýsingagáttir og því sé einhverjum mjög mikils virði að fyrirtækið verði selt. Nú þekki ég ekki vel þessar reglur og ef einhver getur upplýst mig hvort þetta sé rétt þá má hann gera það takk. en ljótt er ef satt er að fyrirtækið verði selt á eina evru til að komast undan þessum reglum maður spyr sig. Tótinn
mbl.is Kaupþing í Lúx ekki selt í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband