Færsluflokkur: Bloggar

Siðferði í viðskiptum -hvert erum við komin ??

Ég get ekki orða bundist eftir að hafa horft á Kompásþáttinn í gærkvöldi. Er þetta það Nýja Ísland sem við erum að upplifa: sá "hæfasti"lifir og það á óförum annara ?? Sé þetta rétt þá er ég alveg sannfærður um að þetta sé aðeins toppurinn á ísjakanum. Kannski eru fyrirmyndirnar það sem drífur þessa gæja áfram ? Ég get ekki betur séð en að það sé nákvæmlega sama hvar borið er niður óheiðarleikinn og sjálfstökuríkisdæmishvötin hafi verið það sem dreif áfram alla útrásina. Blaðamenn geta ekki skrifað um jólasveinana sem smíðuðu Icesaveruglið og ætluðu síðan að setja upp ráðgjafarskrifstofu til að ráðgefa fyrrverandi vinnustað sínum sem þeir voru búnir að setja á hausinn. Orðið á götunni segir að þingmaður eigi í fjölda fyrirtækja sem fái hugsanlega niðurfellingu skulda í hruninu en hikar sá hinn sami þingmaður þegar kemur að því að setja álögur á okkur í formi skattahækkana og fl.? Maður spyr sig hreinlega hvert erum við komin þegar hvert ruglið á fætur öðru er dregið uppá yfirborðið og sumt verður hreinlega aldrei upplýst?

Alþingi - afgreiðir málin fljótt og örugglega (sum þeirra)

Jú ég verð að viðurkenna að það kemur mér spánskt fyrir sjónir að á meðan launalækkun til þingmanna og forystusauðanna virðist hafa dagað uppi í nefnd þrátt fyrir að vera orðið allavegna vikugamalt er búið að afgreiða með hraði hækkun á vörugjöldum, bifreiðagjöldum, hækkun á áfengisgjaldi og tóbakið hækkar sem og skattar bæði tekjuskattur og útsvarið (og örugglega eitthvað fleira sem ég man ekki í svipinn) Maður spyr sig að því hvort að það geti verið að það sé þeim eitthvað örðugt að samþykkja það sem að þeim snýr beint og persónulega meðan það var fljótafgreitt sem snýr að okkur "lýðnum" Ég get ekki að því gert að ég er farinn að efast allverulega um þá 63 sem sitja við Austurvöllinn. Ef þið ráðið ekki við svona einfalt verkefni þá held ég hreinlega að það væri ráð fyrir ykkur að stíga niður og leyfa þeim sem þora að taka við. Er eitthvað erfitt fyrir ykkur að sjá þetta. Maður spyr sig. tótinn

Skítalykt af málinu ??

Ekki er að því að spyrja í aðra röndina er öllu neitað um stjórn eigenda á fjölmiðlunum en svo reynist þetta vera hið mesta bull alltsaman, það má ekki slá á höndina sem gefur þér að borða samkvæmt þessu. Þetta er nú að verða (eða hefur alltaf verið) meira andsk. bananalýðveldið kemur alltaf meira og meira í ljós. Maður spyr sig. Kv. Tótinn
mbl.is Upptaka af útskýringum ritstjóra DV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara að muna að sleppa föngunum út áður en þeir loka.

Ég held að þetta lýsi nú ástandinu best, ekki einu sinni til aur til að halda fangelsum opnum ?? Maður spyr sig Tótinn
mbl.is Fangelsinu á Akureyri lokað hluta ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er ekki ný frétt, löngu búið að stela jólunum.

Ljótt er ef satt er að einhverjir sjái sér leik á borði að "stela"frá öðrum. Ég veit reyndar ekki betur en það sé búið að stela frá okkur jólunum fyrir löngu. Tótinn
mbl.is Jólagjöfunum líka stolið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þúsund bjartar sólir - er einhver samlíking með ástandinu á Íslandi.

Ligg heima með flensuskít, opnaði þúsund bjartar sólir í morgun, hef ekki getað litið uppúr henni og var að klára hana. Ekki er loku fyrir það skotið að hugurinn hvarfli að því hvort við erum ekki að upplifa slíkt ástand hér á Íslandi í dag? Ég held að þjóðinni sé farið að líða eins og vesalingskonunum í þessari sögu eftir að talibanarnir komust til valda. Einhverjir talibanar eru búnir að fara um rænandi og ruplandi, nauðgandi og svíkjandi, ég segi nú ekki drepandi og jú þjóðin situr uppi með gjörninginn og ríkisstjórnin er hér í líki eiginmannsins í sögunni sem lemur á okkur, sparkar í okkur liggjandi sem standandi og við tökum öllu með allt að því bros á vör stöndum upp aftur og tökum við fleiri höggum, spörkum af því að kóraninn(stjórnarskráin) segir þá vera okkur æðri, talibanarnir hafa að vísu verið flæmdir í hella sína í bili en þurfa ekki að axla ábyrgð gjörða sinna og fá syndaaflausn (skuldaniðurfellingu) sjálfsagt bíða þeirra 70 hreinar meyjar við hliðið þegar þeir fara til ríkis allah?
Hér er ekki um neinar þúsund bjartar sólir að ræða varla þá eina en vonandi bíður okkar betri tíð með blóm í haga ? Maður spyr sig.. Tótinn
Ps. var að heyra auglýsingu í útvarpinu um hvort ég hafi lent í slysi og hvort ég eigi rétt á bótum ?
Jú ég hef lent í stórslysi þ.er útrásarvíkingunum,ríkisstjórninni, seðlabankastjórum og fjármálaeftirlitinu og á ég rétt á bótum ? Leyfið mér að hugsa ......Nei ég er of mikið nóbody til þess. 


Afskrifa mínar skuldir líka takk fyrir .

Ég gæti alveg hugsað mér að mínar skuldir hverju nafni sem þær nefnast væru líka afskrifaðar en ætli það verði ? nei allavegna ekki í þessu lífi. En maður spyr ekki að því það má afskrifa svona skuldir og hverjir ætli borgi fyrir þetta ? Já rétt hjá ykkur : VIÐ::::::::: Hvar er réttlætið ? Maður spyr sig. Tótinn
mbl.is Afskrifa 123 milljóna skuld RÚV við ríkissjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað næst lok lok og læs hjá íbúðarlánasjóði ?

Ég get ekki að því gert að það læðist að mér sá grunur að íbúðarlánasjóður gæti verið næstur á dagskránni. Maður spyr sig. Tótinn
mbl.is Fallið frá fjölgun leiguíbúða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólasveinar einn og ellefu - Þvöru-sleikja

Já nú bar vel í veiði. Þú hefur heldur en ekki verið í góðu skapi með nýjustu fréttir. Ekki á að stækka álver í Straumsvík og alls ekki byggja í, við eða á Bakka. Ég var viss um að Bakkafólkið hefði lítinn áhuga á að fá í skóinn frá þér miðað við það sem á undan er gengið, umhverfismat og tafir var ekki það sem þau vildu en mér er nokk sama um það meðan ég er ekki settur í umhverfismat? Ég er viss um að þú ert ekki besti vinur hinna jólasveinanna því þú ert svona talsvert umhverfis ! Ég er viss um að þú ert uppáhaldið hennar mömmu þinnar en ég veit ekki með hann pabba þinn leppalúða á svörtuloftum. Mér finnst samt eins og hann sé svona pínufúll útí þig. Ég þakka þér allavegna fyrir að hafa sent mér þessar tafir kannski maður geti tafið eitthvað að þessum hækkunum sem ég fékk síðustu daga. Þinn Tótinn

fínt þá þarf ég ekki að spá í þessu meir.

Hef alltaf haft áhyggjur að offita mín stafi af ofáti en að sjálfsögðu er þetta genatískt. Flott þá held ég áfram að háma í mig óhollustuna sem aldrei fyrr og svo get ég alltaf sagt að það sé ekki mér að kenna hvernig ég lít út. takk Kári.... tótin
mbl.is Heilinn vegur þungt í offitu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband