Færsluflokkur: Bloggar

Laxveiði í þessu ástandi- nei takk.

Ég ætla rétt að vona að ekki verði keypt eitt einasta laxveiðileyfi á næsta ári af neinni RÍKISSTOFNUN, peningarnir sem í það færu eiga að renna beint til hjálparstofnana og það strax, þá hríðfellur verðið í þessar okurár snobbhundanna og þá er kannski hægt að fá að skreppa í þær með netstubb en maður spyr sig samt hvort ekki verði allt við það sama og síðustu árin en guð forði mér frá því kv. Tótinn
mbl.is Spurt um laxveiðar ríkisbankanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og eigum við von á lækkun á morgun ?

Nei líklega ekki var ekki krónan að veikjast aftur. Væri ekki lag að gefa okkur ríflega lækkun í jólagjöf. Maður spyr sig. Tótinn
mbl.is Olíuverð ekki lægra í 4½ ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árás á Lögreglumann refsiverð ? Hvað þá með mótmælendurna.

Ég er alls ekki að segja það að það megi ráðast að lögreglunni, langt í frá en hræddur er ég um að eftir mótmælaölduna sem nú er að ganga yfir þá verði nú ansi margir sem fái dóma fyrir að ráðast á "yfirvaldið". En kannski verður vægar tekið á þessu "unga fólki" en þarna hefur verið gert en maður spyr sig. Tótinn


mbl.is Sakfelldur fyrir árás á lögreglumann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á ekkert að mótmæla þessu ??

Er ekki einhver tilbúinn til að mótmæla þessu líka, ég sé fyrir mér Hannes Hólmstein standandi fyrir utan Héraðsdóm með skilti sem á stendur. Jón - bæ(jó) og langt til burtistan.... Maður spyr sig.
mbl.is Skattamáli Jóns vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framtíðin er fiskur -flott tilvitnun í Helga Mar.??

Einhver bankamaður sagði nú líka að bankarnir væru ekki að fara á hausinn. Einhver seðlabankastjóri sagði nú líka að það væru 0% líkur á að bankarnir stæðu af sér áföllin. Einhverjir stjórnmálamenn sögðu líka að við yrðum fljótir að ná okkur uppúr þessu. Ég veit það ekki en mér er farið að finnast svona pínulítið eins og alltof mikið hafi verið sagt en ekkert gert. ég held að greinarkorn Einars Más Guðmundssonar í minningu Rúnars Júlíussonar í mbl í morgun sé akkúrat það sem hið nýja en nú gamla ísland hafi verið vandinn í hnotskurn og hefst þá tilvitnunin með leyfi(eða ekki)"Rúnar Júlíusson sagði við Einar Má: Sko sjáðu þegar ég var lítill þá voru þrjú hundruð bátar við höfnina og þrír að vinna í bankanum. Nú eru þrír bátar við höfnina en þrjú hundruð að vinna í bankanum" Tilvitnun lýkur.  Er þetta ekki akkúrat vandamálið?  Maður spyr sig. Tótinn 
mbl.is Framtíðin er fiskur!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttur staður fyrir mótmæli - en róum okkur nú aðeins ?

Er ekki lag að fara að hægja aðeins á þessum mótmælum ? Ég held að það sé sama hvað við mótmælum og rífum kjaft það er eins og að henda vatni á gæs..... Kv. Tótinn
mbl.is Mótmælendur skiptu um útibú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öllu á nú að klína á okkur. Geir þetta gæti kostað okkur eitthvað.

Ég er ekki jarðfræðingur en það var svo sem eftir öðru að þetta væri okkur íslendingum að kenna og grey danir og svíar að vera svona óheppnir að vera staðsettir á milli okkar og afríku ?? Þetta hlýtur að leiða til þess að Danirnir beiti okkur hryðjuverkalögum. Þetta eru allavegna meira í átt að hryðjuverkum en sú ástæða sem notuð voru á okkur við síðustu svoleiðis aðgerð. En maður spyr sig ? Tótinn
mbl.is Ísland og Afríka ollu skjálftanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta í algjörum forgangi - ég spyr bara.

Er þetta eitt af gæluverkefnunum eða forgangsverkefni. Ég veit ekki hvernig vegur er að þessari blessuðu verksmiðju og hvort ekki væri nær að reyna að lappa uppá hann aðeins og nota svo restina í mæðrastyrksnefnd eða fjölskylduhjálpina eða eitthvað af þessum þörfu hjálparsamtökum ?? Ætli ríkið leggi eitthvað þar inn fyrir þessi jól??? maður spyr sig. Tótinn
mbl.is 110 milljónir í veg að vatnsverksmiðju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólasveinar einn og ellefu - Pottaskefill.

Jæja Pottaskefill þú bara mættur og með þvílíkan fýlusvip, hvað um það þó þér verði skipt út núna um áramótin, frændi þinn settur í þinn stað og væntanlega finnst eitthvað fínt embætti fyrir þig. Það mátti alveg búast við þessu þó pabbi þinn hann leppalúði á svörtuloftum haldi svona mikið uppá þig en hann ræður bara ekki öllu hún Grýla hefur nefnilega ýmislegt um málið að segja blessunin. Ég nenni ekki að taka þetta drasl úr skónum sem þú gafst mér ég reikna með því að þetta sé bara jafnleiðinlegt og það sem hingað til hefur komið frá ykkur félögunum. Þinn Tótinn

Öflugir Íslendingar - nýjasta útflutningsafurðin.

Það er með ólíkindum hvað Íslendingar á leið erlendis eru farnir að taka með sér. Jarðskjálfti verður á svæði þar sem aldrei hefur skolfið áður. Guð er sannanlega jafnreiður við okkur íslendingana eins og bretinn ?? Maður spyr sig. Tótinn
mbl.is Ekki laus við jarðskjálfta!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband