Færsluflokkur: Bloggar

Reykleysi dagur 2. - Ég er fallinn...

Í þá gryfju að halda að ég sé sá eini sem fær öll þessi einkenni. ÉG er búinn að vera pirraður, reiður, þreyttur, með hausverk og ekki vildi ég búa með mér.  Væntanlega er þetta nákvæmlega það sem allir lenda í bara í mismiklum mæli.  Fyrirsögnin var að sjálfsögðu bara bull og þetta gengur samkvæmt áætlun en gærkvöldið var erfitt ég viðurkenni það fúslega...... Kv. Tótinn

Jú og svo koma allir hinir á eftir og þetta lendir á oss

Æji heldur dómínóruglið áfram. Það liggur fyrir að Sp er örugglega ekki eina fyrirtækið í vandræðum. Ríkið eignast þetta eins og aðrar lánastofnanir. Hvar endar þessi vitleysa eiginlega. Maður spyr sig.
mbl.is SP vill undanþágu frá reglum um eigið fé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja þá kemur ekkert blað út á Sunnudögum lengur:

Sunnudagsmogginn kemur um miðjan dag á laugardegi, því var sunnudagsútgáfa fréttablaðsins eina blaðið sem kom á mitt heimili á Sunnudagsmorgnum, ég kem að sjálfsögðu til með að sakna blaðsins en tek heilshugar undir það sjónarmið sem margir hafa haft um að þetta dragi nú úr blaðabúnkanum á heimilinu. En ég hef meiri áhyggjur af því að þessi breyting hlýtur að fækka störfum bæði hjá blaðaútgáfunni, prentsmiðjunni og blaðburðarfólki og það veldur mér miklum áhyggjum þegar að störfum fækkar, nóg er nú samt en maður spyr sig Tótinn
mbl.is Ekkert Fréttablað á sunnudögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hver lánar IMF - Ekki er ég aflögu !! Eru ekki til prentvélar ???

Auðvitað er IMF búið með alla peningana.  Ég veit ekki hvernig á að leysa þetta öðruvísi en að fara bara að prenta peninga. Ég er nú svo vitlaus að ég hefði haldið að það ætti aldrei að verða fjárskortur meðan það væri til pappír til að prenta peninga ???? Líklega er þetta eins og með ávísana heftin sem maður fékk fyrir nokkrum árum það var víst ekki nóg að geta skrifað út ávísanir, það var betra að hafa einhverja innistæðu á móti en maður spyr sig. Kv. Tótinn 


mbl.is IMF vantar 150 milljarða dala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jú þá er eitthvað að gera við að þrífa kofann að utan ?? með að þrífa innan úr honum líka en það er allt önnur Ella...

Það er fínt að hreinsunarfyrirtæki fái nóg að gera við að hreinsa kofan að utan, það er spurning hver tekur að sér að hreinsa innan úr húsinu ? Tek enga afstöðu um hvort að Gyðingar sem drepa palestínumenn séu verri en palestínumenn sem drepa gyðinga þetta á að fordæma á allan hátt. En maður spyr sig hvort þetta dráp fengi að viðgangast ef palestínumenn ættu olíulindir. Líklega ekki. KV. Tótinn
mbl.is Hvítskúrað stjórnarráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hemmi Hreiðars í Tottenham ef hann er að leita að alvöru !

Holdgerfingur víkingakarlmennskunnar Hemmi Hreiðars ætti að geta uppfyllt þessar kröfur Rednapps og svo spillir ekki fyrir að Rednapp þekkir aðeins til hans. HEMMA Í TOTTENHAM:
mbl.is Redknapp vill "alvöru" karlmenn í lið sitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið er vald fjölmiðla - Össur hefur talsvert til síns máls.

Lengi hefur það verið í umræðunni á mínu heimili hvort ekki sé nú komið nóg af kreppufréttum ? Við erum nokkuð sammála um það að það sé algjör óþarfi að byrja hvern einasta fréttatíma á neikvæðni. Byljan/365 finnst mér skara langt fram úr fréttastofu útvarps með þetta og það er eins og það þjóni hagsmunum einhverra að fréttirnar séu neikvæðar frekar en jákvæðar. BLoggarar eiga nú sinn þátt í neikvæðri umfjöllun og er ég ekki að undanskilja mig á neinn hátt ég er bölvaður nöldurseggur. Kannski er spurning að fara að snúa við blaðinu ? Gleðigjafanum Gissuri á bylgjunni ætti ekki að vera skotaskuld úr því að setja góðar fréttir á oddinn frekar en að byrja hvern einasta morgunfréttatíma á fréttum af mörkuðunum í Asíu. Kannski þjónar það einhverjum en varla neinum stórum fjölda. Verum jákvæð það er skemmtilegra en nöldrum þó smá það er líka voða gaman. Kv. Tótinn
mbl.is Össur: Eftirtektarverð hjarðhegðun fjölmiðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reykleysi dagur 1. runninn upp. Ó aumingja ég !!! _- hættu þessu væli!

Ég er búinn að vera með í maganum alla helgina yfir þeirri yfirlýstu ákvörðun að nú í dag þ.er mánudaginn 12.janúar 2008 væri ég hættur að reykja fyrir lífstíð.  Um miðjan dag í gær sunnudag rann hins vegar upp fyrir mér ljós og þá leið mér miklu betur með þetta jú ég ákvað að gera þetta eins og þeir sem eru að hætta að drekka brennivín það er ákvörðun mín nær bara yfir einn dag í einu og þannig ákvað ég í gær að ég myndi ekki reykja neitt í dag mánudag, skoða stöðuna á þriðjudag og það  var eins og Púkinn á öxlinni á mér hafi róast eitthvað við þetta . Púkaskrattinn er búinn að henda í mig ýmisskonar pillum síðustu daga sem allir kannast við eins og : hvað þú reykir ekkert mikið og: þú færð ekkert krabba það kemur bara fyrir aðra eða hvað þú getur alveg keypt einn og einn pakka það er nú ekki eins og þú leyfir þér svo mikið. Ég hef hlustað á kvikindið og gleypt í mig hverja athugasemd hans á fætur annarri og jafnvel verið við það að trúa þeim. Ég svaraði honum fullum hálsi í gærkvöldi: JÚ ég reyki alltof mikið; Jú ég get fengið allar tegundir Krabbameins og alls konar óáran eins og aðrir: og Nei ég get ekki og ætla ekki að kaupa mér að reykja því ÞÁ GET ÉG LEYFT MÉR MEIRA..... En ég gæti samt hugsað mér einn vindil núna: NEI stattu þig strákur.  Lagast þetta ekki fljótt ?? maður spyr sig...... kv. Tótinn

Þetta er mig búið að gruna í langan tíma ! helv. helv.!!!!

Ég hef lengi sagt það að bankastofnanirnar eru sökudólgurinn varðandi veikingu krónunnar. Það ætti að taka fyrrverandi stjórnendur þessara stofnana eða þá sem stóðu fyrir þessari vitleysu gagnvart almenningi  og hýða þá opinberlega. Ef satt reynist að menn hafi fengið fjöldann til að taka lán og stöður með gjaldmiðlinum en setið síðan í reykmettuðu herbergi í krafti auðs og tekið feita stöðu gegn krónunni og með því hirt stórar fjárhæðir allt til að sýna nú stóra plúsa í uppgjörum og til að geta náð sér í feita launatékka sökum árangurs og ekki síst spikfeita starfslokasamninga. Nú er nóg komið af rugli segi ég en er nóg komið ?? Nei þetta er rétt að byrja. Helv.f.f...
mbl.is Veittu fólki lán en veðjuðu á veikingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rauðnefur Rótari hafði betur í dag gegn Bláskjá og liði hans.

Ég tek ofan hatt minn (og myndi éta hann ef ég ætti hatt) fyrir United þeir áttu hreint skínandi leik í dag og vil ég þakka þeim fyrir að gera deildina aðeins meira spennandi. Ég held að baráttan muni standa milli stóru turnanna tveggja fram á vorið(united og liverpool) og ég er klár á því að rauða liðið mun standa uppi sem sigurvegari. ???? Lengra ætla ég ekki að ganga á þessum tímapunkti í spádómum enda hef ég aldrei haft snefil af spádómsgáfu en maður spyr sig. Kv. Tótinn

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband