Færsluflokkur: Bloggar

Verða lánin svo lækkuð sem nemur afslættinum ????

Ég get ekki annað en spurt þó ég sé 175% viss um að svo verði ekki. En það má spyrja sig hvort Íbúðarlánasjóður fái lánin á nógu miklum afslætti til að mæta hugsanlegu útlánatapi sem ég hef grun um að eigi eftir að verða gífurlegt. Þarna er verið að bjarga Sparisjóðunum frá hugsanlegu gjaldþroti held ég og þetta er líklega eitt af bjargráðunum til þess. Maður spyr sig . kv. Tótinn
mbl.is Lán keypt með afslætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kristalkúlunni hent á haugana -hundleiðinl. leikur .

Það er augljóst að Wigan menn mættu ekki til leiks fyrr en leikurinn var löngu byrjaður. Skipun að ofan maður spyr sig. Brúsapallurinn er hallur undur Rauðnef rótara og gæti verið að leggja inn fyrir framtíðina. Nei andskotinn ég trúi því ekki en þetta var hreint arfaslök frammistaða hjá báðum liðum og ef þessi frammistaða á leikhúsi martraðanna fleytir rauðu álfunum í toppsætið í lok leiktíðar þá held ég að ég fari nú frekar að horfa á Curling.  Kristalkúlan mín fór í ruslið áðan og verður þar enda andskotann ekkert að marka það sem ég hef sagt eftir að hafa rýnt í hana. Nú verður rauði herinn minn að gyrða sig í brók og hífa uppum sig sokkana og ráðast af hörku gegn Efratúnsmönnum sem skipa víst 3ja besta liðið í Liverpoolborg á eftir aðal og varaliði Liverpool. Góðar stundir en ég gleymdi einu ég ætlaði að óska unitedaðdáendunum báðum til hamingju með frábæran sigur.... Kv. Tótinn
mbl.is Manchester United lagði Wigan, 1:0 - Chelsea sigraði Southend, 4:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég sæki hér með um stöðu sem bankastjóri glitnis/landsbanka og Kaupþing. (Seðlabankinn má fylgja með)

Ég undirritaður Þórarinn Magni Friðgeirsson sæki hér með um stöðu allra bankastjóra Ríkisbankanna og einnig sæki ég um stöðu bankastjóra Seðlabanka Íslands sem að vísu er ekki búið að auglýsa en hlýtur að verða gert fljótlega. Launakrafa mín er hófleg. Ég skal gegna þessum fjórum embættum fyrir laun eins seðlabankastjóra og jafnvel lækka launin mín um 20 % frá þeirri fjárhæð. Menntun mín er aðallega úr skóla lífsins og svo er ég með próf sem löggiltur fasteignasali. Ég hef unnið við sjávarútveginn, bílaiðnaðinn, landbúnaðarstörf,ummmönnun, barnauppeldi, sölumennsku og ráðgjöf þannig að ég tel mig vel undir það búinn að þjóna öllum og hef grunnþekkingu á þessum þáttum.  Meðmæli ætti ég að geta fengið ef með þarf og svo hef ég kosið Sjálfstæðisflokkinn nokkrum sinnum og líklega líka Samfylkinguna þó ég muni það ekkert sérstaklega. Ég lýsi því yfir að ég er sæmilega heill á geðsmunum en er að vísu skapstirður núna þar sem ég er að hætta að reykja aftur en þá þarf ég engar reykpásur heldur.Ég hef ekki tekið mikinn þátt í mótmælum á borði en aðeins í orði og lofa ég að hætta því ef ég fæ starfið, störfin. ATH: Umsókn mín nær yfir öll störfin saman eða hvert fyrir sig og áskil ég mér rétt til að hafna öllum eða taka öll störfin sé þess óskað. 

Virðingafyllst Þórarinn M.Friðgeirsson alias Tótinn 


mbl.is Staða bankastjóra auglýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á leiðinni til Real Madríd nei örugglega ekki ????

Hann er svo góður í fótbolta að hann verður númer 7 - 8 og 9 hjá Manshitunited næstu árin að eigin sögn. Nei hans framtíð er með manshester united segir hann og glottir útí bæði enda kominn með realtattu á hægri rassakinnina (að sögn gaylord fokker) Farvel, adios gooodbye Rónvaldur reginhneyksli... hehhe


þETTA ER KALDHÆÐNI bara svo þið vitið það mér finnst hann ágætur  kv. Tótinn
mbl.is Cristiano Ronaldo eignast vörumerkið CR9
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jú áttu menn von á einhverju öðru ég bara spyr.

Ég er reyndar hissa á því hvað mikið er flutt inn. Ég held að það væri ráð að skoða það hvort ekki er hægt að minnka þennan innflutning og VELJA Íslenskt alltaf þegar kostur er ??? Ég veit að oft er það dýrari valkostur en er búið að reikna dæmið til enda hvort það er í raun það miklu dýrara að teknu tilliti til þess að við höfum atvinnu af því að framleiða og selja framleiðsluna..... Maður spyr sig: Tótinn
mbl.is Metafgangur af vöruskiptum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lopapeysu á gamla fólkið í Englandi - Frábær hugmynd.

Ég var að hlusta á bylgjuna áðan og þá kom fram þessi frábæra hugmynd að við myndum senda lopapeysur, lopasokka, lopavetlinga og lopahúfur til eldri borgara í Bretlandi sem ku víst vera að deyja í unnvörpum úr kulda. Við sláum tvær flugur í einu höggi með þessu hjálpum náunganum í bráðum vanda og lögum almenningsálitið á okkur í englandi og sýnum þeim í eitt skipti fyrir öll að við erum ekki hryðjuverkamenn. Auk þess hef ég trú á því að þetta komi við kaunin á ráðamönnum í ENGLANDINU sem með því að rétta gamla fólkinu ekki hlý föt í kuldanum séu með því að losa sig við óæskilegan þjóðfélagshóp út af bótakerfinu ???? Nei ég trúi því nú ekki en ÞAÐ LIGGUR FYRIR AÐ HUGMYNDIN UM AÐ SENDA ÞEIM HLÝ LOPAFÖT ER FRÁBÆR.  KV. Tótinn


Ég lýsi því líka yfir að mitt fyrirtæki tók ekki stöðu gegn krónunni !

Ég verð í ljósi ítrekaðra fyrirspurna til mín síðustu daga að lýsa því yfir að örfyrirtæki mitt og konu minnar Þá ehf. tók ekki stöðu gegn krónunni á síðasta ári. Við gerðum enga gjaldeyrisskiptasamninga hvorki til að verja eigið fé né skuldir félagsins þetta kemur fram í yfirlýsingu okkar dags. í dag. Þetta er nú meira bullið það getur hver sem er komið fram og lýst þessu yfir ég hef ekki glóru um það hvort stoðir, flgroup, kjalar, exista eða bankarnir tóku stöðu gegn krónunni og kannski þurfti það ekki til hún hefur ein og sér væntanlega verið fullfær um að fremja sjálfsmorð. Þetta er væntanlega eitt af þeim atriðum sem nýskipaður saksóknari fær til umfjöllunar, gangi honum vel en maður spyr sig. Kv. Tótinn
mbl.is Tóku ekki stöðu gegn krónunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi á hann ekki bróður,móður,frænda,frænku,föður afa, ömmu eða son í framvarðarsveitinni sem á að rannsaka.

Ég óska þessum manni velfarnaðar í starfi og vona að hann sé með allt sitt á tæru. Þetta er væntanlega ekki skemmtilegt starf að sinna með alla brjálaða hvort sem þeir eru til rannsóknar eða ekki eins og Sigurður Líndal hinn stórskemmtilegi prófessor benti svo réttilega á. Kannski er þetta maðurinn sem getur og vill taka á því sem þarf að taka á og þeim sem ekki má nefnia á nafn..... en maður spyr sig.... Kv. Tótinn
mbl.is Ólafur Þór Hauksson verður sérstakur saksóknari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er svakalegt ég hef stórar áhyggjur af þessu.

Sör Rauðnefur Rótari hlýtur að fá leikjum frestað meðan hann er að ná sér ????? Svo segir Benites allavega og varla lýgur hann er það. Nei Evra er ágætur fótboltamaður og  United verða í smávandræðum með að fylla hans skarð en Giggsarinn yrði flottur í bakverðinum. En hvað er ég að fabúlera um þetta mér gæti ekki verið meira sama en maður spyr sig . KV. Tótinn
mbl.is Evra frá keppni í þrjár vikur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttin segir ekkert til um hverju verið var að mótmæla í þetta skiptið !

Ég get ekki að því gert að ég skil ekki þegar mótmælt er ástandinu á Gasa, ég er hreint brjálaður yfir því að verið sé að limlesta og drepa á báða bóga en hvað geta Íslensk stjórnvöld gert í því ?? Jú fordæmt, er ISG ekki búin að því???? Ég skil það að menn skuli mótmæla aðgerðarleysi stjórnarinnar gagnvart innlendum aðstæðum og er ég alltaf að sjá það betur að við vitum lítið sem ekkert um horfurnar en maður spyr sig.... Kv. Tótinn
mbl.is Mótmælt við Alþingishúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband