Færsluflokkur: Bloggar

Væntanlega nóg af myndum í þeirri bók??

Mannvitsbrekkan bush yngri hefur ekki riðið feitum hesti þegar kom að því að úthluta gáfum við fæðingu. Miðað við hve "vel" hann hefur stjórnað stærstu þjóð í heimi þá hef ég nú ekki trú á að mikið verði varið í þessa bók en væntanlega verður ekki spurning um að þetta verður metsölubók en maður spyr sig. Kv. Tótinn
mbl.is Bush hyggst rita bók
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Manutd. Meistaraefni ? ef þeir vinna í dag !!!

Eftir hreint ótrúlega slakan leik (að sögn sá ekki leikinn) minna manna í gær fór um mig gamalkunnur hrollur um stöðuna og framhaldið. Leikurinn á eftir segi ég að ráði úrslitum um framhaldið. Vinni United sem mér finnst líklegt í stöðunni þá eru þeir komnir á beinu brautina og hafa framhaldið í sínum höndum. Ég sé ekki að Chelsea séu komnir á Leikhús martraðanna til að spila blússandi sóknarbolta. Mín spá er sú að United vinni þennan leik 2-1 en jafntefli 1-1 gæti dottið inn og það er von mín að svo fari. Sigri United í dag held ég að þeir öðlist því miður það sjálfstraust sem þeir þurfa til að klára þetta í vor. Eins og bent hefur verið á þá eru þeir núverandi heimsmeistarar, evrópu og englandsmeistarar þá er á öllu von en maður spyr sig. Kv. Tótinn
mbl.is Stórsigur Man. Utd á Chelsea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sneri frá villu síns vegar.- Flottur árangur hjá stráknum Tuma!

Sjálfsagt hefur það ekki verið erfið ákvörðun fyrir þennan víst snjalla knattspyrnumann þegar eitt sigursælasta lið Englands sýndi honum áhuga ? Stráksi hefur sagt það í viðtölum að hann hafi frá unga aldri verið stuðningsmaður United eins og svo margir af hans kynslóð. Ég er að velta fyrir mér hve djúpt sá stuðningur ristir þegar þú ert kominn í lið með höfuðandstæðingum síns uppáhaldsliðs. Ég hef trú á því að daginn sem hann lallar sér í gegnum söguna og út á ANFIELD í fyrsta sinn sem liðsmaður Liverpool þá verði ekki aftur snúið, hann verður Poolari í gegn. Ég ber þá von í brjósti að innan árs eigum við eftir að sjá hann í fallega rauða búningnum tárast undir you never walk alone og ég er þess fullviss að hann á eftir að skora eitt og eitt mark fyrir framan THE KOP og ef það er ekki toppurinn á tilverunni þá veit ég ekki hvar hann er. Nei Guðlaugur er orðinn Poolari fyrir lífstíð og vona ég að hann verði fyrsti íslendingurinn til að festa sig í sessi sem byrjunarliðsmaður Rauða hersins en maður spyr sig. Kv. Tótinn
mbl.is Guðlaugur Victor semur við Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég held að það liggi í augum uppí að einhver hefur verið blekktur.

Ég trúi hverju sem er í dag á hvern sem er og ekki tel ég þetta útilokað. Það er eins og starfsfólki hafi verið sagt að fá sem flesta til að taka stöðu með krónunni og síðan sátu "einhverjir" í næstu skrifstofu og tóku stöðu á móti krónunni og hver var með meira fjármagn? jú líklega þeir sem tóku stöðu gegn kr. og hvað gerist svo? Jú krónan lækkar og hver græðir ?? Jú þessir "einhverjir" en maður spyr sig.

kv. Tótinn 


mbl.is Eiríkur Tómasson: Blekktu eigendur bankanna starfsfólk sitt?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æji þurfti endilega að fylgja fréttinni að United væri best. ! ??

Eins og staðan er í dag er United ekki bestir en ég veit þetta er fyrir 2008 og þá VORU þeir bestir. Þeir eru reyndar með ágætislið í dag líka.   FH í 343 sæti. og Íslenska Landsbankadeildin í 91 sæti frábærar fréttir að vera undir hundraðinu. Vonandi mun Nýja Landsbankadeildin þjóta upp listann en maður spyr sig.
mbl.is Manchester United best og enska úrvalsdeildin sterkust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er von til þess að það sama verði gert á Íslandi: Ég held ekki.

Klárlega verður eitthvað annað uppá teningnum hér á landi með sambærileg lán starfsmanna. Ég er enginn spámaður en ég spái því samt að ekki verði gengið jafnhart að fólki hér eins og Luxararnir ætla að gera.  Ég reikna nú með því að ég þurfi að borga mínar skuldbindingar og verð að ætlast til þess að aðrir þurfi að gera slíkt sama. En maður spyr sig. Kv. Tótinn
mbl.is Gjaldfella starfsmannalánin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

3500 fyrirtæki, hvað er til ráða ?? hvernig leysum við þetta ?

Að sjálfsögðu er óumflýjanlegt að einhver fyrirtæki fari á hausinn, sum fyrirtæki eru nær dauðadæmd frá upphafi, önnur eru stofnuð utan um fjárfestingar sem eru nú foknar út um gluggann og fyrirtækið fer þá væntanlega beint í þrot. Verst finnst mér þó að hluti þessara 3500 verða væntanlega gömul og góð fyrirtæki sem hafa kannski komist í hendur misviturra manna sem hafa keyrt þau í þrot í græðgisumhverfinu. Hvað geta stjórnvöld gert? Mér er til efs að þau geti gert nokkurn skapaðan hlut ! Og eiga stjórnvöld að gera eitthvað ? Ja það er spurning hvort ríkið eigi að skipta sér af þessu á beinan hátt! Eina sem mér finnst ríkið eiga að gera í stöðunni er að gera þessum fyrirtækjum kleift að starfa með því að lækka STÝRIVEXTINA STRAX og veita arðvænlegum fyrirtækjum aðgang að rekstrarfé á eðlilegum vaxtakjörum til að komast yfir versta hjallann en hvað telst arðvænt fyrirtæki ? Maður spyr sig. Kv. Tótinn
mbl.is 3.500 fyrirtæki í þrot?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólasveinabrandari Ástþórs snerist upp í andhverfu sína ??

Ég get ekki að því gert að mótmælin eru farin að fara í taugarnar á mér, það er í lagi að mótmæla en að haga sér eins og f..... er of mikið af því góða og til þess eins fallið að gera þessi mótmæli að algjörum skrípaleik. Högum okkur nú eins og siðaðir mótmælendur einu sinni. kv. tótinn
mbl.is Lá við að fundurinn leystist upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað er hann kolólöglegur með United. stigin af þeim og stóra sekt!

Ég vil að allir leikir sem Teves hefur tekið þátt í fyrir Manutd frá því hann skipti verði dæmdir þeim tapaðir og öll stig tekin af þeim og United sektaðir um STÓRFÉ::::::: Nei mig dreymdi smá dagdrauma núna en Sörinn hlýtur að hafa þetta allt á hreinu en maður spyr sig. kv. Tótinn
mbl.is Ný rannsókn í Tevez málinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reykleysi á nýju ári - hér með set ég pressu á sjálfan mig.!

Ég ætla nú að setja alvöru pressu á sjálfan mig með því að opinbera áætlun mína um að verða reyklaus. Ég hef semsagt sett inní kollinn á mér og tekið ákvörðun um að síðasti dagur reykinga minna verður sunnudaginn 11.janúar næstkomandi !!!!! Þann 12. janúar verður fyrsti dagur í nýju reyklausu lífi. Ég er núna búinn að reykja  samfellt í rúm fimm ár eftir að hafa verið reyklaus í 10 ár þar á undan !!. Ég drulluskammast mín fyrir að hafa ekki getað staðist þetta á sínum tíma en den tid den sorg. Ég er búinn að vera að hugsa um þetta og nú á að gera alvöru úr þessu. Ég hef verið að rifja upp hvernig mér leið þegar ég hætti þessu í lok árs 1993 og er búinn að komast að því að mér leið miklu betur þegar helv. níkótínpúkinn var horfinn af öxlinni á mér(eða var haldið niðri því hann hefur líklega aldrei farið alveg fyrst ég byrjaði aftur) og nú er komið að því að reka hann þaðan og núna fyrir lífstíð. Ég er búinn að hugsa upp öll neikvæðu áhrifin af þessu og púkinn er ennþá að reyna að troða því inní hausinn á mér að ég muni fitna heil ósköp við þetta: Ég muni verða svo skapvondur: Ég muni ekki vilja hitta fólk sem reykir: Ég muni verða svo leiðinlegur(leiðinlegri) að það nenni enginn að umgangast mig: Ég muni ekki geta fengið mér kaffibolla né bjórkollu án þess að falla: EN PÚKASKRATTI MÉR ER ALVEG SAMA:  Ákvörðun mín er sú að ég ætla að sigrast á þessu öllu saman !!!!!!!  En ég ætla að reykja eins og andskotinn sé á hælunum á mér þangað til !!!!! KV. Tótinn

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband