Færsluflokkur: Bloggar

það fer Liverpool miklu betur að lenda undir gegn Efratúnsmönnum.

Eina sókn Efratúnsmanna endar með marki, mínir menn voru eins sofandi og FME í aðdraganda bankahrunsins. Nú dugir ekkert annað en að safana liði og hefna. Það reyndar hefur aldrei farið mínum mönnum í Liverpool vel að komast yfir í leikjum. Ég verð ánægðastur ef þeir verða 0-2 undir í hálfleik þá er ég klár á að við vinnum þessa bláskjái frá Efratúni eins og að drekka vatn.......kv. Tótinn....
mbl.is Aftur jafntefli Liverpool og Everton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki græt ég mikið yfir þessu verst að það virðist ekki skipta neinu máli. !

Rauðnefur rassrótari þarf væntanlega að kalla inní liðið fyrir næstu helgi 14 ára gamla leikmenn úr ungmennaakademíu Shitunited. Því er nú andsk. ver og miður að það virðist ekki skifta neinu máli. AÐ sjálfsögðu er kallinn hvort eð er eins og Benítes og Wenger réttilega bentu á með sérsamning hjá yfirstjórn knattspyrnumála í englandi og verður honum ekki skotaskuld úr því að fá leikjum frestað eða fá vinveitta dómara í næstu leiki. Ég tók upp á þeirri vitleysu í síðustu viku að "hætta" að halda með Liverpool og snúa mér að United með spádómum um glæsta framtíð þeirra í þeirri von að það eitt og sér myndi duga til að taka af þeim heppnina og hjálpina en allt kom fyrir ekki. Ég viðurkenni að þetta var ein versta vika lífs míns að þurfa að þykjast halda með þessu guðsvolaða væluliði Shitunited er meira en hægt er að leggja á nokkurn heilvita mann og því lýsi ég því yfir aftur að ég er og verð POOLARI þangað til ég dey og aldrei skal ég nokkurn tímann taka mér slík orð í munn eins og í síðustu viku um að vera aðdáandi United, oj bara ég er enn með óbragð í munninum og lofa ég að slíkt verður ekki endurtekið hvorki í þessu lífi eða því næsta. Ps CR var ekkert veikur í gær hann var með túrverki hehehhehehehahahhahahahhah hhgogogoogogogo maður spyr sig kv. Tótinn
mbl.is Enn fleiri meiddir hjá Man. Utd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski það sé rétt að stjórnin fari í heilu lagi- nei þeir þurfa að starfa fram að kosningum ???

Ég veit það ekki, ég er ennþá á því að stjórnin á að klára sig af fram að kosningum sem væntanlega verða fyrr en 9 maí. Að mínu mati á að endurskoða stjórnkerfið eins og það leggur sig, ráða inn í Seðlabanka einn fagmenntaðan bankastjóra, ráðuneytisstjórar eiga allir að víkja enda gerist það klárlega við næstu ríkisstjórnarskipti. Bankana á að stokka upp og sameina helst við höfum ekki efni á að reka þrjá ríkisbanka.  En hrós til mótmælenda þó ég hafi verið á því að nú hefði átt að láta staðar numið þar sem boltinn er auðsjáanlega farinn að rúlla en hvað veit ég svo sem maður spyr sig. kv. Tótinn
mbl.is Björgvin segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður spyr sig hvað vill þetta fólk núna ???

Ég get ekki að því gert að ég spyr mig hvað er í gangi ??? er ekki búið að segja að það verði kosið fljótlega, óvinur mótmælanda númer eitt er stiginn til hliðar og óróaseggirnir í Samfó eru á því að það sé vænlegast til vinsælda að hætta þessu stjórnarsamstarfi strax svona bara til að vernda eigin sæti. Jú Dabbi ofurhetja er ennþá í seðlabankanum en þegar SJS og Ömmi komast til valda þá verður hann hvort eð er rekinn og því segi ég til hvers að mótmæla maður spyr sig . Væri ekki betra að fara heim og taka utan um fjölskylduna, það er ekki víst að það gefist mörg tækifæri til þess á næstunni ???? kv. tótinn
mbl.is Áfram mótmæli á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wenger hefur rétt fyrir sér að venju - nei Wenger er að bulla.

Auðvitað fær United sérmeðferð það þarf ekki stjarnfræðing til að sjá það enda er United besta lið í heimi, heimsmeistari félagsliða, englandsmeistari og CL meistari og þá á United að fá sérmeðíferð að sjálfsögðu, ég veit ekki hvað meistari wenger vingull er að fæla, Rauðnefur Rótari, minn maður er að sjálfsögðu orðinn ellilífeyrisþegi og á að fá sérmeðferð. Það ætti að gera United fjögur stig fyrir það eitt að mæta í leikina sem þeir eiga að spila. Liverpool og aðrir smáklúbbar eiga ekki að vera að gera sig breiða það er aðeins eitt lið í deildinni sem skal vinna alla leiki með góðu eða illu og það er shit united nei ég meina manutd..... en maður spyr sig .kv. Tótinn  

 

Ps. Liverpool eru samt bestir af restinni.........


mbl.is Wenger segir Manchester fá sérmeðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tengist þetta rannsókninni á Straumi /Burðarás ????

Heyrði því fleygt og hendi því áfram að þetta hafi eitthvað með það að gera að Straumur sé kominn í rannsókn en sel það ekki dýrara en ég keypti það. Orðið á götunni segir að þeir hafi verið seigir að taka stöðu gegn krónunni síðustu mánuði en ég ítreka að þetta er bara orðrómur sem getur verið tóm vitleysa eins og margt annað í dag en maður spyr sig........kv. Tótinn
mbl.is Krónan styrktist um 3,04%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmælendur til mikillar fyrirmyndar og eiga heiður skilið.

Ég verð að segja það að mótmælendur þeir sem voru við Valhöll eiga heiður skilið fyrir framkomu sína þegar þeim var ljóst að tíðindin voru það alvarleg að ekki var við hæfi að halda þessum aðgerðum áfram. Þarna eins og þegar útförin í Dómkirkjunni held ég í fyrradag kom það berlega í ljós að mótmælendur eru upp til hópa gott fólk með góðann málstað. Ég get ekki að því gert að þetta fannst mér drengskaparbragð hið besta. kv.
mbl.is Sjálfstæðismenn í sjokki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki búið að loka á málsóknir með neyðarlögunum ?????

Ég hef ekki flett því upp en einhversstaðar heyrði ég því fleygt að neyðarlögin frá 6.okt.2008 hafi girt fyrir það að hægt væri að fara í mál við bankana. Endilega leiðréttið mig ef ég er að fara með rangt mál. Ef rétt er sem reyndar er nú arfavitlaust þá hefur það engan tilgang að reyna málshöfðun í dag en hugsanlega er fjöldi sambærilegra mála í pípunum sem hafa verið komin í gang fyrir 6 okt. en þetta er héraðsdómur, hæstiréttur gæti snúið þessu og gerir það líklega en maður spyr sig.
mbl.is Vilhjálmi dæmdar bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðan bata Geir - hverju ætlar fólk nú að mótmæla ?

Slæmar eru fréttirnar af forystumönnum ríkisstjórnarinnar! Getur verið að þetta verði til að lægja öldur óánægðra ? Kosið í Maí og ef mótmælin eru raunverulega til að koma stjórninni frá þá liggur það fyrir að þeim verður hætt er það ekki rétt skilið hjá mér ??? Helv. er ég hræddur um að vatnið á millu ofbeldismanna innan mótmælenda sé nú runnið til sjávar. Jú það er enn hægt að mótmæla Davíð, FME IMF eða hvað þetta heitir allt saman. ER EKKI RÁÐ AÐ LEGGJA NÚ NIÐUR MÓTMÆLIN OG SNÚA SÉR AÐ ÞVÍ AÐ FINNA FÓLK TIL AÐ BJÓÐA FRAM........Maður spyr sig kv. Tótinn
mbl.is Geir: Kosið í maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta nokkuð sá sami og "keypti" í Kaupþing ??

Ensku liðin virðast vera nýjasta leikfang auðugra Íslendinga og Araba ??? Það hlýtur að vera gaman fyrir þann sem stundað hefur Championship manager í gegn um árin að gera það svona í alvörunni. Mér getur ekki verið meira sama hvort að Liverpool sé í eigu einhverra Ameríkana eða Sheika frá Kúvæt svo lengi sem liðið spilar meðal þeirra bestu. Ef þessi gæji getur mokað í liðið peningum þá er það bara fínt en hvað gerist svo þegar hann fær leið á þessu . Maður spyr sig......
mbl.is Verða eigendaskipti hjá Liverpool?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband