Færsluflokkur: Bloggar

Ömmi kominn í gang..... gott mál toppmaður en skattarnir maður !

Ég hef kosið sjallana í gegn um tíðina og haft allt á hornum mér í gegn um tíðina en síðustu verk eða verkleysi fráfarandi ríkisstjórnar hverjum sem þar er um að kenna hafa fengið mig til að efast. Nú er ég ákveðinn í að gefa þessari ríkisstjórn séns á því að vinna þau verk sem þarf en mikið rosalega hef ég miklar efasemdir um að þau geti gert það sem þarf en maður veit aldrei og vonar hið besta. Ég er reyndar skíthræddur um að það gæti orðið til þess að mjög fljótlega verði skattarnir hækkaðir í 45 % en ég ítreka þá skoðun mína enn og aftur að ég vil ekki að við greiðum fyrir Icesave reikningana ef við höfum ekki efni á því sem við höfum ekki. Nú vil ég að nýja stjórnin fái smá frið til að vinna að góðum verkum, næst er að taka á Atvinnuleysinu sem er að verða hreint skelfilegt. Kv. Tótinn
mbl.is Innlagnargjöld afnumin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já sæll hver stjórnaði þessu ???

Nei nú er ég á því að kallinn sé búinn að missa það, hvaða framherja á að nota ef  Torress meiðist ngoog eða el zar ??? Mér fannst reyndar mesta bull að borga 20 millj. punda fyrir Keenó í haust en að reyna ekki að troða honum í gang með því að láta hann spila meira er mér óskiljanlegt með öllu en hvað veit ég kannski leiddist honum og vildi fara aftur til London, kannski nennti enginn að tala við hann hugsanlega er hann bara svona leiðinlegur en þetta er nú meira ruglið. Ætli það verði enginn keyptur í staðinn maður spyr sig.....kv. Tótinn
mbl.is Keane aftur til Tottenham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sanngjarn sigur loksins en erfitt var það !!!

Auðvitað áttum við þetta skilið, auðvitað erum við með frábært lið, framkvæmdarstjóra, liðsstjóra, eigendur. Ekki var þetta létt en Riley hjálpaði okkur að klára þetta með því að senda Lampann útaf með rautt sem að sjálfsögðu var ekki rautt frekar en ég heiti Gunnar. Jafntefli hefðu verið skelfileg úrslit v. forystu United. Nú þarf að klára Everton og svo er titillinn okkar í vor ekki spurning. Nú er bjartsýnin komin aftur í gang og við erum auðvitað langbestir og Miklu betri en United, nú er Rauðnefur farinn að skjálfa aftur en maður spyr sig samt ?????
mbl.is Torres tryggði Liverpool sigur á Chelsea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

7-0 fyrir Man utd. Rónvaldur í R..... með fjegur kvekendi

Ég er nokkuð viss um að þessi leiku fer í það minnsta 7 0 fyrir united. Ég yrði heldur ekki hissa þó fröken rónvalda R.... skori fjögur eða fjegur mörk í þessum leik og það í fyrri hálfleik. hinn skotinn þarna Fleksnes skorar þrjú. Þetta verður einstefna og eina sem skiptir verulegu máli í þessum leik er að ég sé Fellíni hárprúða fá beint rautt spjald en maður spyr sig...... kv. Tótinn
mbl.is Rooney mætir ekki gömlu félögunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER þetta um hrun bankanna og þjóðfélagsins Íslands

Eða er þetta um hvað gerist þegar VG og samfó hafa tekið við stjórnartaumunum maðuð spyr sig.
mbl.is Rústað frumsýnt í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er gengi Krónunnar að styrkjast og er vöruverð að hækka ??

Nú þegar gengi krónunnar er á hraðri niðurleið en ekkert bólar á verðlækkunum, það verður gaman að sjá hvernig sú þróun verður. Launakostnaður flestra fyrirtækja hefur verið að lækka, húsaleiga hefur verið að lækka almennt án þess að ég viti hvernig þessum málum er háttað í verlsununum. Olían hefur ekki verið lægra í langan tíma og lækkar bensínið eða Olían onei, nú er háu vaxtastigi og fjármögnunarkostnaði kennt um að ekki er hægt að lækka neitt. Gæti verið að ofjárfesting og útrásarfjörið eigi sinn þátt í þessu rugli maður spyr sig
mbl.is Bónus hækkar mest en Krónan minnst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn og aftur eru sprotafyrirtækjum lokað...... Má ekkert ??

Menn reyna allt í dag til að hafa í sig og á en það er svo sem skiljanlegt að þetta sé stöðvað, dóp á aldrei rétt á sér en mikið finnst mér þetta eitthvað svona vinstri grænt en maður spyr sig.
mbl.is Kannabisræktun á Álftanesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um að gera að halda stýrivöxtum nógu háum á meðan er þjóðin ekki á eyðslufyllerríi.

Þetta var viðbúið, engir peningar til og IMF er að halda okkur í heljargreipum. Gott mál eða hitt þó heldur. Stýrivextir í 18 % segja allt sem segja þarf. Halda menn að Íslendingar séu enn það skyni skroppnir að ef stýrivextir væru lækkaðir eins og hjá öðrum þjóðum færum við aftur á neyslufyllerí ? Ég held að meðan vextir eru þetta háir þá er eina afleiðingin sú að við missum vinnuna í stórum hópum þar sem fyrirtæki sem að öðrum kosti gætu tekið lán til að koma sér yfir mestu erfiðleikana eiga engan kost annan en að segja upp fólki í stórum stíl og ætli það fólk sé nú að spreða í allar áttir ?? Nei nú hljóta nýjir valdhafar eins og Atli Gíslason sem hefur farið mikinn í bítinu á Bylgjunni meðan hann var í stjórnarandstöðu að taka í taumana og lækka stýrivexti niður fyrir 10 % eins og hann hefur hvað eftir annað talað um en ætli það sé ekki komið annað hljóð í strokkinn núna þegar hyllir undir að hann og hans fólk geti breytt einhverju. Nei sami rassinn verður undir þessu liði eins og þeim öllum sem koðnað hafa niður um leið og þeir komast til valda en maður spyr sig samt....Kannski er einhverju hægt að breyta ég held ekki......
mbl.is Óbreyttir stýrivextir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er mér nóg boðið, út með Benna og það strax !

Mér er nokk sama þó hann hafi náð í einhverja helv. dollu í Istanbúl þarna um árið. Það sem okkur er boðið uppá í dag í liðssuppstillingu er alveg fyrir neðan allar hellur. Hvaða heilvita knattspyrnustjóri setur Lúkas Leiva í byrjunarliðið ég bara spyr. Tekur Torress útaf sem svo sem hafði ekki getað mikið en hvað gerir hann í staðinn, setur kantmann í framlínuna með spólgraðan 15-20 marka mann á hliðarlínunni þ.e. Robbie Keene. Rauðnefur Rótari í Manutd hefur þó vit á því að láta sína menn hanga inná þó þeir geti ekkert í 88 mín. eins og oft hefur gerst með Rooney og Berbatov hann veit það að þeir eru alltaf líklegir til að pota einu. Keenó settur inn fyrir gerrard og átti að bjarga öllu á 6 mínutum þetta á ekki að líðast. Mér er alveg sama þó við höfum átt fyrstu 35 mínutur leiksins með húð og hár það gefur ekkert eins og Gummi Ben benti réttilega á það fæst ekkert stig fyrir að halda boltanum innan liðsins það þarf að koma tuðrunni í mark andstæðinganna. Hvenær ætlar Benni að átta sig á því að í Enska boltanum er eitt núll forysta ekki nokkur skapaður andsk. hlutur. Við vorum stálheppnir að tapa þessum leik ekki en nú segi ég bara ef við eigum að vinna einhverja titla þá þarf mann í brúna sem þorir og ég sé það ekki í Benítes nema hann taki 180 gráðu beygju og það strax. Ég vil frekar horfa á mitt lið tapa en skora fullt af mörkum heldur en setja eitt helv. mark og síðan á að halda því. Má ég þá frekar byðja um Curling eða handkast handalausra en maður spyr sig. Ps LIVERPOOL ER MITT LIÐ OG VERÐUR ÞAÐ LÍKA Í MÓTLÆTINU:::::: 14. mars verða United rasssssskelltir ..
mbl.is Wigan og Liverpool skildu jöfn - Van Persie kom Arsenal til bjargar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað á hann að vera áfram bara að skora aðeins meira....

Þessi drengur hefur verið jafnbesti leikmaður Poolara á þessu ári og jafnvel því síðasta líka ásamt afmælisdrengnum sjálfum Carragher og að sjálfsögðu bardrengnum Cerrard.  Ég reyndar sé fyrir mér að mínir menn í Liverpool tapi óvænt í kvöld gegn frísku liði Brúsans því miður en ég hef ennþá tröllatrú á því að mínir menn verði meistarar í vor og ef ekki við þá verður það Aston Villa allt er betra en shitunited..... eða Chelskí. Keenó setur samt tvö mörk fái hann að spreyta sig en það dugar ekki því miður en maður spyr sig kv. Tótinn
mbl.is Dirk Kuyt vill vera áfram hjá Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband