Jóladagatal Tótans dagur fjögur - Kæri Árni M.

Þú kominn í leitirnar W00tog ég varð ekkert lítið hissa þegar ég fékk frá þér kengbognu KreppunaAlien. Þú hefðir átt að sjá upplitið á Icesave reikningum Gasp og Karamelluhúðaðri gengisfellingunniBlush þær urðu ekkert smá vandræðalegar enda um afkvæmi þeirra að ræða. Gengisfellingin varð alveg æf út í Icesavereikningin fyrir að gera ekki ráðstafanir til að verjast þessum getnaði eins og DavíðBanditvar búinn að biðja um og nú talast þau ekki við og andrúmsloftið er orðið þrúgandi. Kengbogna kreppanAlien situr bara róleg, étur upp allar eigur okkar mömmu og mamma er aftur kominn á róandiWhistlingog tekur þetta svo nærri sér að hún tímir ekki orðið neinu. Árni það er þér að kenna að núna tímir hún ekki að setja rúsínur í jólakökurnar sem mér þykja svo góðar af því að kreppan er búinn að éta þær allar og ekki er hægt að kaupa nýjar út af gengisfellingunni.  Mamma mín er að jafna sig aðeins á þessu en hún er búinn að taka skóinn úr glugganum til öryggis og hún skrúfaði aðra hvora peru úr jólaljósunum til að spara rafmagnið allt út af þessari fjandans kengbognu Kreppu. Mikið svakalega obboðslega væri ég glaður ef þú gætir komið og náð í vini þína svo ég eigi gleðileg rúsínujól. Þinn vinur Tótinn 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband