Færsluflokkur: Bloggar

Jóladagatal Tótans - dagur tvö - Kæri Davíð.

Alveg er það óskiljanlegt hvað þið eruð góðir við mig þessa dagana, ég fór mjög seint að sofa í gærkvöldi og var frekar óþekkur en fékk samt í skóinn. Þessi líka flotta GENGISFELLING með karamellukremi og ég fékk í magannBlush . Ég þurfti að fara til læknisins og reikningurinn jú hann var að sjálfsögðu eins og ein afborgun af myntkörfuláninu sem ég var að taka til að borga fyrir síðustu skógjöf ykkar (enda er ég ekki kominn með afsláttarkort frá tryggingarstofnun enþá). Gengisfellingin réðist að Icesavereikningnum og við það hækkaði hann um 400 milljónir króna og mamma fékk taugaáfall og er kominn á geðdeild. !!! Þið þurfið ekkert endilega að gefa mér í skóinn á hverju kvöldi en það væri nú virkilega fallegt af ykkur Geir vini þínum að henda inn svona eins og einni vaxtalækkun ef þið eruð að þessu á annað borð. Þinn vinur Tótinn.

Jóladagatal Tótans dagur eitt - Kæri Geir !

Dagur eitt púnktur. Ég veit þú getur ekki trúað því hvað ég var ánægður Grinað sjá þig svona rólegan og heimilislegan í þættinum hjá Jóni Ársæli um daginn. En það var nú samt alveg óþarfi að senda mér ICESAVE reikninginn, ég bað ekkert um hann fyrir þessi jól. Mamma var alveg brjáluð þegar hún sá hann og situr nú heima og bryður róandiCrying. Ég sjálfur er samt alveg rosalega ánægður með að þú skulir hafa munað eftir mér fyrir þessi jól. Og konan þín hún Ingibjörg (held ég)er líka mjög fín og bakar fínar pönnukökur. Svo var líka rosalega gaman að heyra hvað þú átt góða vini á hinum norðurlöndunum sem vildu allir gefa þér pening.  Ég skal lofa að vera rosalega góður í dag svo ég fái eitthvað í skóinn í nótt  en plís ekki fleiri reikninga!!!! Þinn Tótinn

Laun of há ? hann er nú ekki ofgóður af þessu kallanginn ?

Halda menn að það sé leikur að stjórna ríkisútvarpinu ??? Ég hef ekki hugmynd um það en að sjálfsögðu ætti hann að sjá sóma sinn í að krefjast launalækkunar svona táknrænt allavegna ?
Maður spyr sig ? Tótinn


mbl.is Launin kannski of há
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í hvaða veröld starfar þessi kjaranefnd ?

Hver borgar þessum snillingum laun ? Flestallir þurfa að sætta sig við að taka á sig launalækkanir en þessir snillingar geta ekki einu sinni farið að einföldum fyrirmælum. Er þetta fólk ekki að hlusta á "yfirboðara" sína ? Maður spyr sig.
mbl.is Kjararáð getur ekki lækkað launin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varla met á norðurlöndum ?

Þetta getur nú ekki verið nýtt met á norðurlöndum er það nokkuð. Gæti trúað að þetta væru smáaurar fyrir suma ??? Maður spyr sig:

Tótinn


mbl.is Danskur forstjóri stakk af með 12 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bestur Óskarinn næst

Ekki er nokkur vafi á því að hann er bestur í boltanum. Hann er líka flottur leikari og látum hann hafa óskarinn næst. En á hann þetta skilið ? Því miður hann er bestur.  Maður spyr sig.
mbl.is Cristiano Ronaldo fékk Gullboltann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fulllangt gengið ?

Ég veit það ekki, ég er fokvondur út í allt og alla en er þetta ekki aðeins of mikið af því góða ?

Maður spyr sig ?

Tótinn


mbl.is Réðust inn í Seðlabankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hækka launin - fækka í liðinu um leið ?

Því ekki að hækka launin en fækka liðinu um svona ca helming allavegna á alþingi og út með alla þessa aðstoðarmenn. Árni Johnsen á heiður skilið fyrir að afþakka aðstoðarmann, þetta getur varla verið svona erfitt starf fyrir hinn venjulega alþingismann. Maður spyr sig. Errm

totinn


mbl.is Svara að vænta frá Kjararáði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væntanlega nóg til á tönkunum núna ??

Það er spurning hvort ekki séu til nægar birgðir hjá innflytjendum þar sem auðsjáanlega hefur dregið úr bílaumferð á höfuðborgarsvæðinu. Heyrði einn ágætan af landsbyggðarmanni sem var að skemmta sér í höfuðborginni og hann sagði við félagana "það hefur dregið svo mikið úr umferðinni hér í borginni að þó ég vafri útá miðja götu núna er bara enginn til að keyra á mig" Væntanlega er ekki hægt að lækka bensín og olíuna vegna gengismála og líklega kemur sá söngur upp aftur og enn.  maður spyr sig ?

Totinn

 


mbl.is Olían aftur undir 50 dali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hehe hvernig fór á síðustu leiktíð ?

maður spyr sig ?
mbl.is Ferguson: Engin ógn af City
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband