Jólasveinar einn og ellefu - Gilja - gaura.

Jú kæra Gilja-gaura. Þú hefur þá haft það af að komast til að gefa í skóinn þetta árið og það þrátt fyrir að Stekkjastaur hafi komið í gær og þú sért víst í ekkert smá vondu skapi útí hann og hótar að hætta í Jólasveinasamstarfinu nema hann samþykki að ganga í Jólasveinaklúbbinn í Brussel og henda Leppalúða á svörtuloftum út úr hellinum. Hvert á hann að fara greyjið ? Það vill enginn fá hann, hann skrifar kannski endurminningar sínar og þá verður sko skotið fast á allt og alla og þá kemur kannski í ljós að þið hafið verið að gefa mjög óþekkum börnum í skóinn síðustu árin. Sagan segir að sumir hafi fengið heila banka meðan aðrir og þar á meðal ég eina lásí happaþrennu eða kartöflu. Þú verður að passa þig á leppalúða þó hann sé pabbi þinn þá ert þú ekkert í neinu uppáhaldi hjá honum. Takk samt fyrir að hafa gefið mér olíugjaldshækkun í skóinn ég er þó þakklátur fyrir að það var ekki meira, Stekkjastaur sagði nefnilega að við yrðum að sætta okkur við allt sem frá ykkur kæmi þetta árið. Kær kveðja Tótinn

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband