12.12.2008 | 17:39
Mission Jónínu Ben. - Mission impossible ?
Ég get ekki að því gert að eftir að hafa hlustað á viðtal/samtal Jónínu B. og Reynis Traustasonar á í bítið á bylgjunni þá sýnist mér Jónína því miður ekki geta farið í gegn um heilt viðtal án þess að koma að því máli sem hún er með á heilanum það eru baugsfeðgar. Eins og ég hef nú haft gaman af því að hlusta á sumt sem Jónína hefur haft fram að færa í gegn um tíðina sem byrjaði með líkamsræktarbyltingu hennar sem varð meðal annars til þess að ég reif mig upp á rassg. og fór að æfa fyrir margt löngu og hefur væntanlega orðið til þess að ég bý yfir ágætis heilsu í dag eftir áralanga kyrrsetu. Síðustu árin hefur hún verið með þá feðga (sem ég þekki ekkert meira en fram hefur komið í fjölmiðlum )algjörlega á heilanum og er það miður því að mér finnast margar þær hugmyndir sem fram hafa komið frá þeirri annars ágætu konu. Hún hefur að mínu mati ýmislegt fram að færa um hvernig við eigum að byggja upp nýja framtíð á hinu Nýja Íslandi sem klifað hefur verið á síðustu dægrin en ég fæ alltaf einhvern aulahroll þegar hún þarf alltaf að troða illsakir við þessa menn þegar hún kemst á flug. Það getur vel verið að þeir hafi gert eitthvað sem athugunar er vert og er ég ekki neinn talsmaður þeirra viðskiptahátta en til þess höfum við dómstóla sem hafa sýknað þá af þeim ákúrum sem á þá var borið(að mestu) Einhvert smáræði var dæmt á Jón Á. en Jóhannes og hans fólk að öðru leiti var sýknað og mér er spurn Jónína er ekki réttara að setja fortíð þína gagnvart þessum mönnum afturfyrir sig og snúa þér að alvöru málum sem bíða fólks með hugmyndir á borð við þínar. Ég hef grun um að þú verðir ekki tekin alvarlega fyrr en við sjáum að þetta sé ekki það sem þig drífur áfram þ.e. að koma höggi á þessa einstaklinga og fyrirtæki þeirra ? Komdu nú með alvöru hugmyndir sem þú telur að hjálpi okkur út úr þeirri stöðu sem við erum í og þá er aldrei að vita nem þær hljóti brautargengi því okkur vantar fólk í framboð með alvöru hugmyndir en ekki biturt fólk sem er eingöngu að reyna að koma höggi á einhvern eða einhverja þá sem kunna að hafa gert á þeirra hlut. Maður spyr sig. Tótinn.
Athugasemdir
Þessu er ég alfarið sammála, ekki það sem þjóðin þarf þessa dagana "kona með óunna fortíð"
Gunnar Björn Björnsson, 12.12.2008 kl. 20:31
Sæll,
Ég er sannfærð um að einn daginn tekst mér að ræða íslenskt viðskiptalíf án þess svo mikið sem minnast á Baugsfyrirtækin og þá sem hafa soðið það bull saman.
Ef Guð lofar náum við að stemma stigum við græðginni og yfirganginum, blekkingum og innherjaviðskiptum manna sem tengjast þeim. Þangað til viðskiptaumhverfið hér kemst í lag verð ég að halda áfram að vara ykkur við drengir mínir. Svo þurfið þið ekkert að taka mark á mér, en það er önnur Ella.
Mikilvægast fyrir íslenskt viðskiptalíf er að brjóta upp þetta bákn sem Baugur hefur verið í íslensku samfélagi og svo að byggja hér réttarríki sem tekur á svona fólki en leggst ekki flatt undir þá.
Annað gott sem þarf að gera það er að ná sérfræðingum inn á þing. Hvernig förum við að því ?
Takk samt fyrir skrifn, ég þoli alveg gagnrýni.
Gunnar, fortíðin mín er uppgerð að öllu leiti :-)
Jónína Ben (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 11:04
Jú sæl Jónína. Það er gott að vita að þú þolir gagnrýni og þar sem ég þekki ekki til þessa viðskiptaumhverfis sem þú hefur gagnrýnt sem mest og örugglega með réttu að einhverju leiti þá lítur það þannig út fyrir mér og fleirum held ég að þú sért í einhverri mission á þá feðga og eða það umhverfi sem þeim hefur verið skapað ? Ég get ekki að því gert að mér finnst alveg með ólíkindum að um leið og þeir sem hvað mest hafa gapað í stjórnarandstöðunni lympast niður um leið og þeir komast að kjötkötlunum og sami rassinn verður undir þeim eins og þeim sem fyrir voru, Framsóknarflokkurinn á nú stóran þátt í því hvernig ástandið er í dag hvort sem það var meðvitað gert eða ekki ? Ég held að þeir sem gefa sig út fyrir eða eru sérfræðingar yrðu fljótir að detta niður(eða upp) á það plan sem virðist vera á Alþingi okkar Íslendinga því miður. Kv. Tótinn
Þórarinn M Friðgeirsson, 14.12.2008 kl. 12:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.