Já ég gefst upp, lofa að mótmæla ef þú tekur þennan vúdúgaldur af mér plís !!

Já minn aumann, ég er búin að vera að standa í "ritdeilu" við konu sem kennir sig við nornir og nornagaldur. Eina ástæðan sem ég finn fyrir deilunni er að ég er ekki búinn að vera nógu mikið á móti og nú held ég að það sé að koma í bakið á mér, ég er búinn að liggja fárveikur að mínu mati nær dauða en lífi en það er nú bara eins og við karlmenn höldum flestir ef við fáum flensu eða vott af henni ! Ég verð að viðurkenna að ég er að verða logandi hræddur um að á mig hafi verið lagður galdur og ég er búinn að taka loforð af sjálfum mér um að héreftir verði ég góður og mótmæli öllu ég mótmæli ríkisstjórninni, FME, bönkunum og síðast en ekki síst baugsfeðgum og Tryggva,Björgólfunum og Bjarna Ármanns. Viltu þá plís taka prjóninn úr dúkkunni ég er að sturlast. ÉG ER Á MÓTI;;;;;;;;;;;; kv. Tótinn

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband