18.2.2009 | 15:10
Nei þeir ná ekki fimm stiga forskoti - svo mikið er næstum því víst.
Fúlhamarsmenn munu veita Rauðnefi Rótara og liðleskjum hans verðuga keppni sem von er og ekki er loku fyrir það skotið að skoruð verði mörk á leikhúsi martraðanna í kvöld hjá Hollenska fiðluleikaranum með rockybrosið. Ég segi að það verði 2-2 úrslit sem þýða að vísu að manure nær 3ja stiga forskoti en maður spyr sig nú samt.......
Nær United fimm stiga forskoti? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er svo æðislegt þegar þú kemur með þessar spár þá yfirleitt fær maður flugeldasýningu frá United. Takk!
Pétur Orri Gíslason, 18.2.2009 kl. 15:21
Pétur minn því miður hefur þetta hingað til reynst rétt og ég er hræddur um að það gæti reynst nokkuð rétt hjá þér í dag einnig en ég lifi í voninni en fallið byrjar klárlega í mars..... kv.
Þórarinn M Friðgeirsson, 18.2.2009 kl. 15:29
Fúlhamrar eiga eftir að ruglast á mörku og skora í sitt eigið.
Berbatöffarinn potar einu og Van der Sar brosir út að eyrum í leikslok.
2 - 0 fyrir United
Viðar Örn Línberg (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 15:42
Það er vitað mál að Tótinn og hans félagar þ.e.a.s. púllarar leggjast á bæn fyrir hvern Utd leik,og óska þess að þeir tapi,því spákúlurnar þeirra hættu að virka,og nú á að vita hvort að bænastundir virki e.h. betur.En ég get alveg upplýst þá með það,að bænastundirnar muni ekki virka heldur,því nú eru Utd menn komnir á skrið,og það stöðvar þá ekkert úr þessu.Sorry Tóti minn þið verðið bara að þerra tárin í kvöld,því Utd verður komið með 5 stiga forskot eftir kvöldið,og eiga eftir að auka forskotið.Góðar stundir.
Hjörtur Herbertsson, 18.2.2009 kl. 17:47
Spyrjum að keikslokum,engin leikur búinn fyrr en plautað hefur verið af,hef fulla trú á að Fulham.hafi leikhús rauðu djöflana fyrir sig þennan daginn,minn kæri.
Ólöf björnsdóttir (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 17:51
Þessar spár þínar eru svolítið neyðarlegar fyrir þig. Ég man eftir einni spá sem rættist, þá spáðir þú Man Utd auðveldum sigri.
Ragnar Martens, 18.2.2009 kl. 22:38
Þakka þér Tóti! :D
Pétur Orri Gíslason, 19.2.2009 kl. 00:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.