5.2.2009 | 18:20
Já sæll ! þetta eru slæmar fréttir fyrir Fjölni Þ..
Hann sagður er vera með fjörug mörg tryppi
og sum þeirra lentu á kafi í tjörninni
En Mel B hún segir hans margfræga typpi
visið víst vera og duga ei í törninni....
Maður spyr sig..
Með gríðarlega kynorku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Fréttin nær vitaskuld athygli viða
vesælan manndóminn hlýtur að svíða
Hestamenn hlæja
og kerlingar æja
Hann, karlanginn kann ekki að ríða.
Guðjón Leifur Gunnarsson (IP-tala skráð) 5.2.2009 kl. 20:41
Góður Guðjón
Þórarinn M Friðgeirsson, 5.2.2009 kl. 21:00
Hefur margan herrann kætt
hún með blíðuhótum.
Margoft lá í móðurætt
meður gleiðum fótum.
Siggi B (ekkert skyldur Mel B) (IP-tala skráð) 5.2.2009 kl. 21:57
Skjemmtileg viðleitni hjá þér tóti tröll og Guðjón sýnist mér kunna ýmislegt fyrir sér, þó stuðlasetningin í hinu annars´léttúðuga limruformi, sé örlítið á skjön hjá honum í fyrstu hendingunni.
Magnús Geir Guðmundsson, 5.2.2009 kl. 21:57
Menn bara skáldlegir. Gaman að því.
Bragi Sigurðsson, 6.2.2009 kl. 09:45
Fyrr var í folanum trekkur
flengdist um fallegar brekkur
En Melurinn B
nú telur að C
orðin Fjölnisbúð stekkur
Rafn Hilmarsson (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 12:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.