25.1.2009 | 11:21
Kannski það sé rétt að stjórnin fari í heilu lagi- nei þeir þurfa að starfa fram að kosningum ???
Ég veit það ekki, ég er ennþá á því að stjórnin á að klára sig af fram að kosningum sem væntanlega verða fyrr en 9 maí. Að mínu mati á að endurskoða stjórnkerfið eins og það leggur sig, ráða inn í Seðlabanka einn fagmenntaðan bankastjóra, ráðuneytisstjórar eiga allir að víkja enda gerist það klárlega við næstu ríkisstjórnarskipti. Bankana á að stokka upp og sameina helst við höfum ekki efni á að reka þrjá ríkisbanka. En hrós til mótmælenda þó ég hafi verið á því að nú hefði átt að láta staðar numið þar sem boltinn er auðsjáanlega farinn að rúlla en hvað veit ég svo sem maður spyr sig. kv. Tótinn
Björgvin segir af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
við verðum að hafa stjórn fram að kosningum annað væri stjórnleysi nóg er vandinn
Ólafur Th Skúlason, 25.1.2009 kl. 11:26
Ekki ef mótmælendur fá að ráða Ólafur sem mér sýnist vera að gerast, klárlega hlaupa fleiri samfylkingarmenn úr skaftinu til að reyna að tryggja sér sæti í næstu ríkisstjórn sem þeir verða væntanlega aðilar að..... Allt snýst þetta þegar upp er staðið um að tryggja sér og sínum stóla og völd..... helv....
Þórarinn M Friðgeirsson, 25.1.2009 kl. 11:36
tóti ég vill ekki sjá vg í ríkisstjórn hafa ekki sagt hvað þeir ætla gera
Ólafur Th Skúlason, 25.1.2009 kl. 11:43
Nei VG Vita ekki rassgat, eina stundina er SJS á því að skila peningunum til IMF og hina stundina heldur hann því fram að orð hans í beinni útsendingu hafi verið slitin úr samhengi hvernig sem það er hægt ?????
Þórarinn M Friðgeirsson, 25.1.2009 kl. 11:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.