14.12.2008 | 17:08
Jólasveinar einn og ellefu - Kæri Stúfur.
Já þú ert þá þarna Stúfur minn. Ég hélt að þú værir í fýlu af því að það voru allir að skamma þig fyrir að vita ekki að álfarnir sem þú skipaðir til að endurskoða Glitnibanka hefðu áður verið að endurskoða alla stóru kallana sem fengu mest í skóinn síðustu árin. Er það rétt sem sagt er að þú hafir líka viljað henda greyjinu honum leppalúða á svörtuloftum út úr hellinum ?? Þetta er pabbi ykkar og þið verðið að vera góð við hann, hann var líka búinn að segja ykkur frá öllum vondu köllunum sem voru að stela.
Ég þakka þér nú samt fyrir að setja vörugjaldahækkunina í skóinn minn í nótt ég neyðist víst samkvæmt Stekkjastaur og Gilja- gauru að taka við þessu. Kær kveðja Tótinn
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.