12.12.2008 | 12:34
Nei nú er ég hissa - góð frétt en ?
Ætli ekki verði einhver leið að halda þeim óbreyttum td. með því að hækka stýrivexti aðeins til að passa að þetta gerist ekki. Maður spyr sig. Tótinn
![]() |
Dráttarvextir lækka um 4% um áramót |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ekki sammála því að þetta sé endilega góð frétt, er verið að hvetja til vanskila? Eiga dráttarvextir þá að vera lægri en útlánsvextir bankanna á almennum skuldabréfum og yfirdrætti? Eins og ástandið er núna þá verður það þannig, ég hef alla vega ekki heyrt neitt um að það eigi að lækka stýrivextina.
Hvernig fer það með fyrirtækin í landinu ef ódýrara er að borga ekki reikninga sína á réttum tíma heldur en að fá lán hjá bankanum ef illa stendur á.
Ásdís (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 12:48
Ætli Ásdís það teljist ekki góð frétt ef eitthvað lækkar þessa dagana, þetta á ábyggilega að vera smáplástur á sárin en ég held að það verði hvort eð er stór og ört stækkandi hópur sem hvorki getur borgað skuldir sínar á gjalddaga né í nánustu framtíð en að sjálfsögðu verður maður að vona hið besta......
Þórarinn M Friðgeirsson, 12.12.2008 kl. 13:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.