Hrægammar á ferð !!

Jæja það var eins og við var búist í öllu "krepputalinu" þá kemur hið rétta eðli mannsins í ljós. Ég var að kíkja á smáauglýsingar á Mbl. is áðan og það er eins og við manninn mælt þar eru komnar nokkrar auglýsingar um uppboð á gjaldeyri og ég sá dæmi um danska krónu sem boðin var á 35 kr. íslenskar. Sjálfsbjargarviðleitni gætu einhverjir sagt en þetta kalla ég ekkert annað en að reyna að skara eld að eigin köku í þessu umhverfi sem boðið er uppá, ekki eru mörg ár síðan að menn voru dæmdir fyrir okurlán sem ekki eru í líkingu við þessa hörmung. Eins herja fréttir að hingað til lands séu komnir nokkrir stórir hrægammar til að kaupa upp leifarnar af íslensku útrásarfyrirtækjunum á spottprís. Ég hef grun um að ekki séu hagsmunir okkar í hávegum hafðir af þessum mönnum nei. Ég vona að við berum skynbragð á að berja af okkur allar svona tilraunir en kannski er okkur ekki stætt á öðru en að reyna að fá eitthvað fyrir leifarnar ef einhverjar eru eftir ??

maður spyr sig

Totinn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Axfjörð Sigfússon

Nýfrjálshyggjan maður! Hún er að borða börnin sín!

Sigfús Axfjörð Sigfússon, 21.10.2008 kl. 12:48

2 identicon

Já vonandi kafnar hún á þeim !!!!

Þórarinn M. Friðgeirsson (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband